lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Mér líður dálítið eins og laxi sem verið er að þreyta, eins og verið sé að bíða eftir því að ég gefist upp. En ég ætla ekki að gefast upp alveg í bráð vegna þess að ég er ekki lax, ég er þingmaður. Mér virðist að ég hafi jafnvel komist að ákveðnu lögmáli sem ríki í þingstörfum þó að ég sé ungur að árum hér í þinginu.
Lögmálið er þetta, virðulegur forseti. Því stærra mál sem sé til umræðu því minni umræða eigi að eiga sér stað um það. Ég held við verðum öll að sameinast í því að reyna að rjúfa það lögmál vegna þess að við erum hugsandi verur, við erum þingmenn, við erum ekki laxar sem verið er að reyna að þreyta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)