lengd þingfundar.
Herra forseti. Þar sem frumvarpið um brottnám líffæra er lagt fram af þingmanni en ekki ríkisstjórn hefur það ekki verið unnið af fagaðilum innan stjórnsýslunnar, sem eðlilegt væri ef litið er til þess hversu stórt og viðkvæmt mál er um að ræða. Áður en tekið er svo stórt skref líkt og mælt er fyrir í frumvarpinu væri því æskilegt að vinna málið innan stjórnsýslunnar og undirbúa heilbrigðiskerfið betur undir þær breytingar sem breytt löggjöf í málaflokki líffæragjafar kynni að hafa í för með sér. Það verður að hafa samráð við helstu heilbrigðisstofnanir á Íslandi og taka til aðgerða sem auka munu þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í samskiptum við aðstandendur. Einnig þarf að framkvæma ítarlegri úttekt á málinu innan stjórnsýslunnar hvað varðar þann kostnað sem breytt löggjöf í málaflokknum kynni að hafa í för með sér. Ég vil leggja áherslu á að fyrsta skref í átt að aukinni líffæragjöf frá látnum einstaklingum er að auka umræðu um líffæragjöf í samfélaginu og auðvelda einstaklingum að skrá hvort þeir (Forseti hringir.) vilji gefa líffæri eða ekki. Þetta mál á engan rétt á forgangi og engin ástæða er til að lengja þingfund. Þingmaðurinn segir nei.