lengd þingfundar.
Herra forseti. Í dag er afmælisdagur. Það er afmælisdagur ríkisstjórnarinnar. Hún er búin að sitja í nákvæmlega hálft ár í dag. Það tók ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hálft ár að taka það skref sem hún kallar nú eftir stuðningi við. Það tók ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur líka hálft ár að staðfesta sömu gömlu vinnubrögðin. Sama gamla meirihlutaræðið, sama gamla meirihlutaofbeldið. Það hefði í rauninni verið heiðarlegra að segja að ekki stæði til að breyta vinnubrögðum á þingi í staðinn fyrir að segja að það bæri að breyta vinnubrögðunum og gera síðan það ekki.
Það er sömuleiðis mjög athyglisvert að hæstv. forsætisráðherra hefur ekki látið sjá sig í umræðunni í allan dag þegar verið er að ræða eitt umdeildasta álitamál íslenskra stjórnmála. Og hún kallar eftir sérstakri sérmeðferð á. Í mínum huga snýst þetta mál um vinnubrögð og vonda pólitík. Vond vinnubrögð og vonda pólitík. Þetta snýst um sérmeðferð fyrir stórútgerðina, um peninga, um lobbýisma og sérhagsmunagæslu. Þess vegna (Forseti hringir.) eru vonbrigðin svo mikil. Ég biðla til vina minna í Vinstri grænum: Komið í veg fyrir þetta. Starfið í þágu almannahagsmuna. Til þess voruð þið kosin, ekki til að gera það sem til stendur að gera í dag eða næstu daga.