148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

lengd þingfundar.

[16:31]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Hv. samþingmenn og sérstaklega hv. þingmenn í stjórnarliðinu. Ég á bágt með að trúa því að öllum stjórnarliðum sé það mál sem hér er helst um deilt svo mikið hjartans mál og forgangsmál að þeir vilji knýja það fram með þessum hætti og lýsa þar með stuðningi við forseta þingsins, sem hefur ekki sýnt neinn lit til að liðka fyrir þessu máli. Ég vil ekki trúa því og trúi því ekki fyrr en atkvæðagreiðslunni er lokið að stjórnarliðar styðji allir vinnubrögð af því tagi. Ég styð ekki málið.