148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[16:40]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er verið að biðja um leyfi þingsins til að setja þingmannamál á dagskrá. Forseti biður okkur þingmenn um að setja þingmannamál á dagskrá og taka það fram fyrir öll önnur þingmannamál. Tilgangurinn er sá að lækka veiðigjöld og gefa útgerðum afslátt. Mér hefði fundist betri bragur á því ef forseti hefði sagt sem svo við hæstv. ríkisstjórn: Þetta geri ég ekki vegna þess að þá mun ósamkomulag og sundrung verða í þingsal og það gengur ekki. Það geri ég ekki þeim þingmönnum sem treysta á mig sem forseta alls þingsins.

Það voru mér mikil vonbrigði að forseti skyldi samþykkja að setja þetta þingmannamál á dagskrá í svona miklum ágreiningi. Farið hefði betur á hinu. (Forseti hringir.) Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með forseta að hann skyldi ekki hafa staðið með þingmönnum í þessum efnum.