Afbrigði um dagskrármál.
Herra forseti. Hér ætlum við að greiða atkvæði um hvort tiltekið mál sem er hér í grenjandi ágreiningi eigi að komast á dagskrá. Komast á dagskrá hvenær? Ja, einhvern tíma í nótt þegar meiri hlutinn er farinn heim að sofa og við í minni hlutanum höldum uppi störfum Alþingis eins og venjulega. Af hverju á að taka þetta mál á dagskrá? Jú, af því að það þarf að afhenda vel völdum vinum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur 3 milljarða. Ef þeim er umhugað um litlu fyrirtækin, litlu útgerðirnar, fá þessar litlu útgerðir afslátt. Og það má vel hækka þann afslátt ef þessir aðilar eru að berjast í bökkum. En í staðinn ákveður ríkisstjórnin í skjóli formanns atvinnuveganefndar að færa sérstökum (Forseti hringir.) aðilum 3 milljarða af okkar peningum. Peningum almennings. Ég ætla ekki að greiða leið þessa máls.