148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[16:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er mjög sérkennilegt að þetta mál skyldi ekki koma fram fyrir 1. apríl því að legið hefur fyrir lengi að ákveðnar tegundir útgerða hafi verið í vandræðum vegna þess með hvaða hætti veiðigjöldin leggjast á. Hvers vegna birtist þetta mál allt í einu núna? Og, sem er ekki síður undarlegt, hvers vegna er það með þeim hætti sem það er? Ekki er tekið sérstaklega á vanda litlu útgerðanna. Ekki er verið að bregðast við vandanum sem legið hefur fyrir lengi, með þessu frumvarpi. Þetta frumvarp mun auk þess hafa verið unnið í sjávarútvegsráðuneytinu en er svo lagt fram sem þingmannamál. Hvers vegna er það, virðulegur forseti? Það er allt mjög dularfullt.