Afbrigði um dagskrármál.
Herra forseti. Ég verð nú að leyfa mér að lýsa vonbrigðum mínum með það að við skulum vera hér í þessum sporum. Þetta ætti auðvitað ekki að vera svona. Ég vil sömuleiðis lýsa áhyggjum mínum yfir því að samstarf hér í þinginu, milli stjórnar og stjórnarandstöðu, skuli vera komið í þá stöðu sem nú blasir við. Það var lagt upp með allt öðrum hætti. Reyndar voru gefin út mikil fyrirheit af hálfu ríkisstjórnarflokkanna sem tóku saman höndum, ekki bara um samstarf við ríkisstjórn heldur um eflingu Alþingis. Menn sjá hvernig það hefur tekist. Hér á að ræða mál sem er tekið fram fyrir þá röð sem samkomulag hafði tekist um á sama tíma og málum í þágu aldraðra og öryrkja, sem eru komin langt í nefndum, er kastað fyrir ofurborð.