Afbrigði um dagskrármál.
Herra forseti. Það hefur legið fyrir um nokkurt skeið að gjaldtökuheimild myndi renna út í haust, raunar frá því að þar að lútandi ákvæði var sett fyrir þremur árum. Það er því dálítið sérstakt að við þurfum að vera hér í einhverri skyndimeðferð með neyðarfrumvarp þremur dögum fyrir þingfrestun. Ég skil ekki af hverju þetta mál var ekki löngu komið fram ef nauðsyn bar til að endurnýja gjaldtökuheimildina, ef það voru einu rökin fyrir framlagningu málsins. Að verið sé að blanda því saman við meiri háttar breytingar á veiðigjaldafyrirkomulagi er alveg stórmerkilegt; án nokkurs samráðs, án nokkurs undirbúnings að séð verði. Enn og aftur: Þetta er stórpólitískt mál. Það hefur verið þrefað um þetta í vel á annan áratug hið minnsta. Að detta í hug að koma með þetta inn í þingið með svo skömmum fyrirvara eru ótrúleg vinnubrögð. Ef vilji stóð til að liðka sérstaklega fyrir litlum og meðalstórum fyrirtækjum hefði enn og aftur, með vísan til þess (Forseti hringir.) að það lá fyrir fyrir löngu að þessi gjaldtökuheimild myndi falla út, verið nægur tími til að kalla til samráðs í þinginu um hvernig best yrði að því staðið. En nei, það er ekki gert, það er reynt að smygla þessu í gegn á síðustu stundu undir því yfirskyni að mikið liggi við. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð, ég mun ekki greiða þessu máli götu.