148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[17:00]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hér er spurning hvort samþykkja skuli afbrigði til að taka þetta mál á dagskrá. Veiðigjöld eru verkfæri sem við notum til að afla tekna af sameiginlegri auðlind allra landsmanna. Það að ætla að lækka þessi veiðigjöld á handahlaupum með frumvarpi frá meiri hluta atvinnuveganefndar korteri fyrir þinglok er alls ekki til þess fallið að skapa sátt um þessa gjaldtöku. Raunar er stórmerkilegt að við skulum vera á þessari vegferð núna. Í dag er verið að greiða út meira en milljarð króna í arð til hluthafa HB Granda; á sama tíma ætlum við að forgangsraða lækkun veiðigjalda umfram öll önnur mál sem bíða afgreiðslu. Hverjum dettur svona vitleysa í hug? Fyrir utan það að þessi vinnubrögð eru bara óforskömmuð. Að við skulum vera að ganga frá þessu á þennan hátt, að verið sé að gefa sólarhringsumsagnarfrest á þessu máli í þokkabót. Það er það mikil flýtimeðferð á þessu, þetta er það aðkallandi, að við eigum ekki einu sinni að leyfa fólki að rýna almennilega í þetta.