148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

Afbrigði um dagskrármál.

[17:01]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er eiginlega ekkert annað en einhvers konar sturlun að við skulum vera að ræða það hér í alvöru eða öllu heldur mótmæla því hér í alvöru — því það er sannarlega enginn sem kemur upp og mælir þessu bót — að taka þetta risastóra pólitíska mál, flókna, mikið rædda og umdeilda mál, og þröngva því á dagskrá með afbrigðum í gegnum þingið á síðustu metrunum þegar fjöldinn allur af öðrum málum bíður afgreiðslu. Þetta eru óskiljanleg vinnubrögð. Þegar maður nær ekki botni í vinnubrögð fer maður að ímynda sér eitthvað og þá hugsar maður: Er verið að leggja gildru fyrir hv. formann atvinnuveganefndar, að taka þennan öskupoka sem hún á að koma inn í himnaríki, svo að ég fari frjálslega með (Forseti hringir.) tilvísanir sem hér hafa fallið. Hvað er þetta? Ég minnist þess að hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn Vinstri grænna ætluðu sér að taka til og sópa í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Ég er ansi hrædd um að þeir séu að sópa rangt hús. Ég verð að segja það.