148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

siðareglur fyrir alþingismenn.

443. mál
[21:07]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um siðareglur fyrir alþingismenn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín góða gesti.

Með þingsályktunartillögunni eru lagðar til breytingar á ályktun Alþingis um siðareglur fyrir alþingismenn með það að markmiði að alþingismenn leggi sig fram um að skapa í störfum sínum heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan og hvarvetna þar sem þeir sinna störfum sínum. Markmiðið er einnig að stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi fyrir alþingismenn, starfsmenn þingsins og gesti. Í breytingunum felast viðbrögð þingmanna við þeim opinskáu umræðum sem átt hafa sér stað í íslensku samfélagi, þar á meðal innan stjórnmálanna, um kynferðisofbeldi og áreitni.

Nefndin fjallaði á fundum sínum um nokkur álitaefni málsins, m.a. gildissvið reglnanna gagnvart varaþingmönnum og hvenær þingmenn ættu að kynna sér siðareglurnar og undirrita yfirlýsingu þar um. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. siðareglnanna er kveðið á um að við upphaf þingsetu sinnar skuli alþingismenn afhenda forseta Alþingis undirritaða yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér siðareglurnar og að sama gildi um varaþingmenn sem hafa setið samfellt í fjórar vikur. Í framkvæmd hefur þingmönnum verið kynnt að á fyrsta fundi Alþingis eftir alþingiskosningar liggi siðareglurnar á borðum þingmanna ásamt formi fyrir yfirlýsingu sem þeir geti undirritað og afhent skrifstofunni til staðfestingar þess að þeir hafi kynnt sér reglurnar. Á fundum nefndarinnar var rætt hvort ekki væri eðlilegt að þingmenn fengju siðareglurnar og yfirlýsinguna sendar strax að loknum kosningum og útgáfu kjörbréfs frá landskjörstjórn og að sama gilti um varaþingmenn frá því þeir tækju sæti. Nefndin tekur fram að í siðareglunum komi fram forsendur sem eru grunnur þess hlutverks sem kjörnum fulltrúum er falið. Þær eiga að vera almennar og til leiðsagnar fyrir þá um hvaða kröfur eru gerðar til þeirra, allt frá kjöri þannig að mikilvægt sé að reglurnar séu kynntar þeim strax eftir kosningar svo að þeir geti skilað undirritaðri yfirlýsingu sem fyrst eftir kosningar. Nefndin telur enn fremur að sömu rök eigi við um varaþingmenn og telur því rétt að leggja til að það verði fortakslaus skylda allra sem taka sæti á Alþingi að þeir kynni sér siðareglurnar jafnskjótt og þeir taka sæti og undirriti yfirlýsingu þar um á sínum fyrsta þingfundi. Þess vegna leggur nefndin til breytingu á þingsályktunartillögu í þá veru.

Nefndin tekur fram að siðareglur eigi að vera lifandi plagg og taka mið af þeim breytingum sem verða í samfélaginu eins og kveikjan var að þessu máli. Nefndin telur að til þess að svo megi verða sé nauðsynlegt að auka sýnileika siðareglnanna og aðgengi að þeim á vef Alþingis. Þá sé einnig nauðsynlegt að umfjöllun um siðareglurnar verði regluleg á meðal alþingismanna, t.d. með málstofum og fræðslufundum.

Nefndin tekur einnig fram að með siðareglum sé verið að auka gagnsæi í störfum alþingismanna, kynna almenningi hlutverk þeirra og ábyrgðarskyldu sem sé til þess fallið að dýpka þekkingu á hlutverki alþingismanna, sem og að auka tiltrú og traust almennings á Alþingi.

Nefndin leggur að framansögðu til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Á eftir a-lið 1. mgr. komi nýr stafliður, svohljóðandi: Orðin „sem hafa setið samfellt í fjórar vikur“ í 2. málslið 2. mgr. 5. gr. siðareglnanna falli brott.

Við afgreiðslu þessa máls úr nefndinni voru Líneik Anna Sævarsdóttir og Jón Þór Ólafsson fjarverandi en rita undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Undir þetta nefndarálit rita framsögumaður, sú sem hér stendur, Brynjar Níelsson, Jón Steindór Valdimarsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Óli Björn Kárason, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir, og auk þeirra Líneik Anna Sævarsdóttir og Jón Þór Ólafsson.