siðareglur fyrir alþingismenn.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að koma inn í vangaveltur hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar um trúnað, sem honum varð tíðrætt um í ræðu sinni. Þingmaðurinn velti upp þeim fleti að trúnað mætti nota sem skálkaskjól fyrir störf í nefndum eða fyrir „búllíisma“, eins og hann orðaði það. Ég átta mig ekki alveg á því hvað þingmaðurinn er nákvæmlega að fara með því. En ég sjálfur tel að trúnaður sé almennt mjög mikilvægur í störfum, ekki bara þingmanna heldur í mörgum störfum, og á frekar erfitt með að sjá að trúnaður geti verið „svolítill trúnaður“, ef það er til sem hugtak. Annaðhvort ríkir trúnaður um þau störf sem menn eru að vinna eða ekki.
Hvað varðar nefndir þingsins þá er það a.m.k. minn skilningur að trúnaður gildi um það sem fer fram á nefndarfundum þingsins. Menn geta væntanlega talað um sína eigin afstöðu og sína eigin orðræðu á nefndarfundum vilji þeir það, en mér finnst langsótt að það geti farið mikið lengra en það.
Mig langar í þessu sambandi að spyrja þingmanninn: Telur þingmaðurinn að trúnaður í nefndastörfum geti aldrei gert gagn, hann geti aldrei verið gagnlegur í nefndastarfi? Og þá aftur að hinu hvort hann telji að trúnaður geti gilt að einhverju leyti en ekki að öllu leyti í nefndastarfi?