siðareglur fyrir alþingismenn.
Herra forseti. Já, þetta er kannski ekki alveg einfalt eins og þingmaðurinn kemur inn á. Ég get alveg séð að hægt sé að setja upp dæmi þar sem menn hafa í frammi gjörsamlega óviðurkvæmilegt athæfi og erfitt annað en að slíkt eigi að spyrjast út. Slíkt athæfi getur, a.m.k. í einhverjum tilfellum, þess vegna verið undanfari eða andlag ákæru út á við og vafasamt að hægt sé að skýla sér á bak við trúnað ef menn beinlínis brjóta af sér. Enda held ég ekki að þetta snúist um það. Í mínum huga snýst þetta um það að menn geti átt á nefndafundum heiðvirð samtöl sín á milli um efni máls, reifað sjónarmið og jafnvel skoðað hug sinn upphátt, án þess að vera undir það settir að slíkt verði síðan túlkað eða jafnvel afflutt utan fundarherbergisins sem afstaða, mótþrói eða eitthvað þess háttar.
Um leið og við erum farin að tala um það út í frá að einhver hafi upplifað mótþróa eða eitthvað svoleiðis þá kemur sjálfkrafa næsta spurning: Af hálfu hvers, hver sagði það, hver var með mótþróa o.s.frv.? Það býður í raun upp á að dansinn haldi þá áfram og menn útsetja þá bæði sjálfa sig og þá mögulega aðra sem þeir eru að vinna með fyrir því að þurfa nánast að bregðast við og geta þá jafnvel átt á hættu sjálfir að rjúfa trúnað með þeim viðbrögðum sínum.