siðareglur fyrir alþingismenn.
Virðulegur forseti. Það er þess vegna sem það er ekki óskráð eða hefðarregla að bannað sé að vitna beint í fólk af því að það getur verið auðvelt að taka slíkt úr samhengi. Sem dæmi þá hef ég áður notað þá lýsingu að ákveðin tregða hafi verið við að afgreiða gagnabeiðni í fjárlaganefnd. Ég get lýst því á þann hátt að þegar ég bað um viðkomandi gögn hafi ítrekað verið reynt að beina þeirri beiðni annað. Ef tregða lýsir því ferli nákvæmlega þá er ekkert að því. Það getur vel verið að einhver skilji það á annan hátt eða upplifi það öðruvísi, en mér finnst ekkert óeðlilegt að ég útskýri hvernig ég upplifði ferlið.
Ef mér finnst orðið tregða vera nákvæmt orð til að lýsa því hvernig störf nefndarinnar ganga fyrir sig, þá held ég að það sé ekkert óeðlileg umræða um störf þingsins. Við erum sérstaklega með dagskrárlið um störf þingsins þar sem við þurfum að geta tjáð okkur aðeins um það hvað er í gangi í nefndunum. En trúnaður á tvímælalaust við. Við verðum að virða það að oft er ákveðin hugmyndavinna í gangi. Í hugmyndavinnu er verið að vinna með ómótaðar tillögur og kasta fram ómótuðum hugmyndum. Kannski grípur það einhver og vinnur betur og vinnur úr því og eldri hugmyndir verða úreldar sem slíkar. Þá er orðið tiltölulega ósanngjarnt að vísa í eldri hugmyndirnar sem skoðun viðkomandi.
Það er ekkert sjálfsagt í þessu. Það eina sem ég býst við í raun er að við getum reynt að útskýra upplifun okkar á þann rökstudda hátt sem ég var að reyna að gera með tregðuna. Mér finnst það vera nákvæm lýsing á ferlinu. Ég held að það sé ekkert ónákvæm lýsing á því sem gerðist mín megin frá. Þannig að trúnaður er tvímælalaust eitthvað sem er ekki klippt og skorið. Við þurfum að geta átt gott samtal um það og geta tjáð okkur fyrst almennt, svo kannski sérhæft eftir því sem líður á.