148. löggjafarþing — 67. fundur,  4. júní 2018.

almennar stjórnmálaumræður.

[20:29]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn.

„Það þarf annað en hjalið tómt til að hrinda Íslandi á fætur aftur, það þarf atorku og ráðdeild og framsýni og þollyndi.“

Svo mæltist Jóni Sigurðssyni, með leyfi forseta, í hvatningu til landa sinna á tímum sjálfstæðisbaráttunnar. Þetta voru orð að sönnu og þegar við horfum til baka á 100 ára afmæli fullveldisins getum við sagt með stolti að við höfum sem þjóð náð undraverðum árangri. Íslenskt efnahagslíf stendur í blóma, fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr, og hið sama má segja um þá fjölbreyttu flóru fjölþjóðlegrar menningar sem hér hefur vaxið og dafnað.

En árangur okkar á undanförnum árum verður ekki aðeins rakinn til fullveldis okkar og sjálfstæðis heldur ekki síður til þeirrar framsýni sem við höfum sýnt í alþjóðasamstarfi. Það má segja að frá upphafi hafi leiðtogar þessa lands áttað sig á að fullveldi og sjálfstæði lítillar þjóðar yrði aldrei betur varið en með virkri þátttöku í samstarfi þjóðanna. Þannig vorum við meðal stofnaðila Sameinuðu þjóðanna og NATO og höfum á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í samvinnu Evrópuþjóða í efnahagsmálum og fríverslun í gegnum aðild okkar að EFTA og Evrópska efnahagssvæðinu.

Áhersla okkar á alþjóðasamstarf í gegnum tíðina hefði vafalítið verið Jóni að skapi. Hann áttaði sig einmitt á mikilvægi frjálsrar verslunar og nauðsynjar þess að rjúfa efnahagslega einangrun landsins, með leyfi forseta:

„Verzlaninni er eins háttað á Íslandi eins og annars staðar: að því frjálsari sem hún verður því hagsælli verður hún landinu. Slíkt dæmi er mikils vert, og það því heldur sem mörgum hættir við að taka Ísland eitt sér í allri veröldinni og vilja neita að reynsla annarra landa eigi þar við.“

Alþjóðlegt samstarf hefur skilað okkur meiri efnahagslegum framförum en nokkurn óraði fyrir. Stórbætt aðgengi að erlendum mörkuðum hefur leitt til þess að atvinnulíf okkar er fjölbreyttara og öflugra nú en nokkru sinni fyrr. EES-samningurinn hefur auk þess skilað okkur aukinni samkeppni á flestum sviðum samfélagsins, bættri neytendavernd, stórstígum framförum á sviði umhverfismála, svo nokkur dæmi sé tekin. Yfirstandandi hagvaxtarskeið hefur skilað miklum ávinningi um allt land, líkt og sjá má í uppgangi ferðaþjónustu, sjávarútvegs, fiskeldis og ekki síður nýsköpunar um landið allt.

Fyrir vikið skipum við okkur nú í röð fremstu þjóða heims, hvort heldur sem horft er til velmegunar, velferðar eða hamingju þjóðarinnar. En það er ekki aðeins efnahagslífið sem hefur gerbreyst. Íslenska þjóðin hefur líka tekið miklum breytingum. Landsmönnum af erlendum uppruna hefur fjölgað mikið á gildistíma EES-samningsins og telja nú um 12% íbúa. Það er mikil breyting á skömmum tíma, breyting sem hefur auðgað menningu okkar og þjóðlíf auk þeirra jákvæðu áhrifa sem hún hefur haft á efnahagslíf okkar. Af fjórfrelsinu svonefnda, hornsteinum hins innri markaðar Evrópusambandsins, hefur frjálst flæði fólks án efa skilað okkur hvað mestum ávinningi. Án þess hefðum við aldrei getað tekist á við hraðan hagvöxt íslensks efnahagslífs á undanförnum aldarfjórðungi.

Á sviði stjórnmálanna hefur líka margt breyst. Undangengnar kosningar til Alþingis og sveitarstjórna fela í sér skýra kröfu um breytingar. Flokkum hefur fjölgað til muna og á landsvísu hefur fylgi fjórflokksins svonefnda fallið úr rúmum 90% í rúm 60% á aðeins áratug.

En það er ekki aðeins að nýir flokkar hafi komið fram á sjónarsviðið. Hinar hefðbundnu átakalínur á mörkum hægri og vinstri áss stjórnmálanna hafa nú vikið fyrir átökum milli alþjóðahyggju og þjóðernishyggju, frjálslyndis eða íhalds. Sú breyting skýrir kannski best tilurð núverandi stjórnarsamstarfs.

En þessi þróun á sér ekki aðeins stað hér á landi heldur um allan hinn vestræna heim. Full ástæða er til að hafa áhyggjur af uppgangi þjóðernisöfga í Evrópu og Bandaríkjunum samhliða vaxandi einangrunarhyggju og sundrungu. Aukinn flóttamannastraumur í heiminum hefur í för með sér ýmsar áskoranir fyrir vestræn samfélög en um leið tækifæri sé vel á málum haldið. Það eru því vonbrigði að sjá fjölmörg ríki fría sig ábyrgð með lokun landamæra. Það er sérstaklega sorglegt að hlýða á málflutning Bandaríkjaforseta í þessum efnum. Bandaríkin eru því miður ekki lengur áreiðanlegur bandamaður í baráttunni fyrir frelsi og mannréttindum.

Því má segja að það séu blikur á lofti, í efnahagslífi sem og í stjórnmálunum. Í efnahagslífinu hér heima fyrir horfum við á kunnugleg óveðursský hrannast upp við sjóndeildarhring. Mikil styrking íslensku krónunnar samhliða miklum launahækkunum innan lands hafa dregið mjög úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Vaxandi ójafnvægi er nú í þjóðarbúskapnum og hagvöxtur ekki lengur knúinn áfram af útflutningsgreinum okkar heldur vaxandi einkaneyslu og útgjöldum hins opinbera. Þetta er kunnugleg sjón. Þegar raungengi íslensku krónunnar er jafn hátt og nú er kennir sagan okkur að skuldadagar séu skammt undan. Þetta er hrjóstrugt umhverfi fyrir allt atvinnulíf í landinu, hvort heldur sem litið er til sjávarútvegs, ferðaþjónustu, iðnaðar eða tækni- og þekkingarfyrirtækja. Það er ekkert sem kemur á óvart í þessari þróun. Þetta er endurtekin „íslensk sveifla“ í boði íslensku krónunnar. Viðreisn telur hina íslensku sveiflu fullreynda og nauðsynlegt að leita nýrra lausna. En því miður hafa stjórnvöld hins vegar kosið að stinga höfðinu í sandinn og vona að þetta reddist.

Sagan kennir okkur einnig að við þessar kringumstæður er styrk stjórn efnahagsmála mikilvæg. Sýna verður ráðdeild í rekstri hins opinbera og skapa svigrúm fyrir nauðsynlegar vaxtalækkanir til að hjálpa atvinnulífinu að takast á við auknar þrengingar. En þar kýs ríkisstjórnin einnig að láta skýr aðvörunarorð sérfræðinga sem vind um eyru þjóta og blása til stórsóknar í auknum ríkisútgjöldum. Sú leið var einnig farin fyrir réttum áratug og við munum of vel hvernig sú vegferð endaði.

Vandi ríkisstjórnarinnar liggur í þeirri málamiðlun sem ríkisstjórnarsamstarfið byggir á. Gjarnan hefur verið vísað til sögulegra sátta í ljósi þess að flokkarnir þrír spanna hægri og vinstri ásinn ágætlega. En ríkisstjórnin er ekki mynduð um málamiðlun á þeim ás. Breytt er yfir skoðanamun flokkanna með þeirri eitruðu blöndu að stórauka ríkisútgjöld á sama tíma og skattalækkanir eru boðaðar. Það er brúarsmíði stjórnarinnar.

Þessi ríkisstjórn er hins vegar mynduð um það sem sameinar flokkana þrjá. Andstöðuna við nauðsynlegar umbætur á íslensku samfélagi. Óttann við það ákall um breytingar sem lesa má úr úrslitum undangenginna kosninga. Varðstöðuna um óbreytt ástand.

Flokkarnir þrír hafa engan áhuga á því að skapa hér stöðugra gengisumhverfi eða tryggja fyrirtækjum og almenningi lægra vaxtastig. Þeir hafa engan áhuga á að auka samkeppni á sviði matvælaframleiðslu og tryggja hér matvælaverð á pari við hin Norðurlöndin og veiðigjaldafrumvarp það sem lagt var fram í síðustu viku sýnir svo ekki verður um villst að flokkarnir þrír hafa engan áhuga á að ná hér fram sátt um fiskveiðistjórnarkerfið sem svo hart hefur verið deilt um.

Hér er á ferðinni ríkisstjórn sérhagsmuna, íhaldsstjórn, ríkisstjórn hinna þriggja framsóknarflokka.

Sagan kennir okkur hins vegar að breytingar verða aldrei umflúnar. Einangrun okkar sem þjóðar er löngu rofin og í dag eigum við ekki aðeins í samkeppni við nágrannaþjóðir okkar um vörur og þjónustu. Við eigum í samkeppni við þær um lífskjör fyrir fólk. Samfélög nútímans byggja nefnilega á þekkingu og heimurinn stendur okkur öllum opinn þegar kemur að vali á því hvar við kjósum að mennta okkur eða búa og starfa. Í samkeppni um samanburðarhæf lífskjör má engin þjóð sem byggja vill afkomu sína á tækni og þekkingu við því að verða undir.

Við skulum því ávallt hafa hvatningarorð Jóns til þjóðarinnar í huga. Það þarf dug og áræðni til að byggja upp öflugt og gott samfélag. En við skulum heldur ekki gleyma varnaðarorðum hans, að „því heldur sem mörgum hættir við að taka Ísland eitt sér í allri veröldinni og vilja neita að reynsla annarra landa eigi þar við“, með leyfi forseta.

Við skulum því ganga veginn áfram í nafni frelsisins sem fullgildir og ábyrgir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi, fullviss þess að hann verði genginn til góðs, landsmönnum öllum til heilla. — Góðar stundir.