148. löggjafarþing — 67. fundur,  4. júní 2018.

almennar stjórnmálaumræður.

[20:38]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Kæru landsmenn. Það er nokkuð sérkennileg tilfinning að vera kjörinn aftur á Alþingi eftir átta ára fjarveru. Ýmislegt hefur breyst en annað ekki. Eftir hrun var ákall um meiri samstöðu inni á þingi og eru stór loforð í stjórnarsáttmálanum um samráð og eflingu þingsins. Það er því mjög sorglegt að sjá að núverandi ríkisstjórn hefur í engu breytt hinum hvimleiða skotgrafahernaði stjórnmálanna.

Mig langar að spyrja kjósendur Vinstri grænna heima í stofu nokkurra spurninga:

Kusuð þið Vinstri græn fyrir rúmum sex mánuðum svo þau gætu fellt tillögur í þessum sal um hækkun barnabóta eða vaxtabóta?

Kusuð þið Vinstri græn svo þau gætu fellt tillögur um aukna fjármuni til Landspítalans og til sjúkrahúsa úti á landi?

Kusuð þið Vinstri græn svo þau gætu fellt tillögur um fjármuni til úrbóta í meðferð kynferðisbrota?

Kusuð þið Vinstri græn svo þau gætu slegið skjaldborg utan um dómsmálaráðherra sem braut lög að mati Hæstaréttar?

Og kusuð þið Vinstri græn svo ljósmæður, af öllum stéttum, þyrftu að standa í mánaðarlöngum deilum við ríkisstjórnina um mannsæmandi kjör?

Mig langar einnig að spyrja kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem eru að fylgjast með þessari umræðu:

Kusuð þið þessa flokka svo þeir gætu fellt tillögur um nauðsynlega fjármuni til aldraða og öryrkja?

Og kusuð þið þessa tvo flokka svo þeir gætu fellt tillögur um aukna fjármuni í framhaldsskólana og í nauðsynlegar samgöngubætur?

Kæru landsmenn. Þessar tillögur hafa ríkisstjórnarflokkarnir þrír allir fellt, þvert á vilja ykkar. Mér sýnist að þessir þrír stjórnmálaflokkar og sérstaklega Vinstri græn hafi gjörsamlega misst alla tengingu við kjósendur sína og þjóðina. Þetta gerist vart skýrar en þegar þau vilja nú forgangsraða hagsmunum kvótagreifa og skattakónga fram yfir aldraða, öryrkja og barnafjölskyldur.

Kæru landsmenn. Ég hef velt fyrir mér að undanförnu á hvaða vegferð samfélagið okkar er. Förum yfir fjórar staðreyndir.

1. 26 bankamenn, sem að stærstum hluta vinna hjá ríkisbanka, fá 1 milljarð í laun á ári. Þessi upphæð er einn tíundi af því sem þessi ríkisstjórnin tímir að setja í allar barnabætur landsmanna og er einn fjórði af því sem sett er í allar vaxtabætur almennings.

2. Forstjórar hefðbundinna íslenskra kauphallarfyrirtækja eru með 1–2 milljónir í laun á viku.

3. Útgerðarmaður gengur nýlega út með 22.000 milljónir í vasanum vegna nýtingar á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

4. 1% landsmanna á meiri hreinar eignir en það sem 80% landsmanna eiga.

Auðvitað á fólk að uppskera eins og það sáir. En ekki gera ljósmæður það og ekki heldur kennarar, lögreglumenn eða eldri borgarar. Við erum ein þjóð í þessu landi en hér er að myndast sjálftökustétt ofurlaunamanna sem eru langflestir yfirlýstir Sjálfstæðismenn. Almennur kjósandi Sjálfstæðisflokksins ætti að íhuga þá staðreynd og spyrja sig hvort hann eigi að veita þessum flokki sérhagsmuna brautargengi.

Kæru landsmenn. Verkefnin eru ærin. Við erum með vaxandi þunglyndi og fíknivanda meðal þjóðarinnar en í hverri viku er framið sjálfsvíg í okkar litla landi. Um 6.000 börn líða skort en Öryrkjabandalag Íslands kallaði nýja fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ávísun á fátækt og eymd. Þá erum við með framkvæmd útlendingastefnu sem oft jaðrar við mannvonsku og gjaldmiðil sem gagnast eingöngu fjármagnseigendum og peningaprentsmiðjunni á Englandi.

Það er allt of dýrt að lifa á Íslandi, hvort sem litið er til matvæla, húsnæðis eða jafnvel peninga en Ísland er ellefta ríkasta land í heimi. Þetta þarf því ekki að vera svona, en til að hlutirnir geti breyst þarf þjóðin að senda þessa ráðherra heim. — Takk fyrir.