148. löggjafarþing — 67. fundur,  4. júní 2018.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:07]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ágætu Íslendingar. Við búum í auðugu landi sem býður upp á það að við getum öll búið hér við öryggi og allsnægtir. Saman höfum við tekist á við stór verkefni og staðið af okkur áföll sem við getum verið stolt af. Það er í eðli okkar sem þjóðar að standa saman og styðja hvert annað. Við lítum jafnvel á okkur sem miðdepil alls og gleymum því að heimsmynd okkar er allt önnur en stærsta hluta mannkyns sem horfir á landakortið þar sem Ísland er agnarsmár punktur efst uppi í horni. Það er jafnvel svo að einhverjir vita ekki hvar Ísland er, svo undarlegt sem það má nú vera.

Ágætu landsmenn. Þrátt fyrir alla dægurmálaumræðu sem birtist alla vega þá erum við sammála um margt. Fyrir utan það að veðrið er best fyrir austan er ekki annað að heyra en að við viljum öll styrkja grunninnviði sem byggjast á öflugu menntakerfi, traustu heilbrigðiskerfi, réttlátu félagskerfi og öflugu samgöngukerfi. Við þekkjum verkefnin sem fyrir okkur liggja en greinir eðlilega á um leiðir. Í öðru orðinu tölum við um að mennta til sérfræðistarfa, en í hinu orðinu ákveðum við hverju við viljum trúa þegar sérfræðingarnir gefa ráð. Segja má að við séum sérfræðingar í brjóstviti. Auðvitað komumst við langt á því eins og dæmin sanna, en það dugar ekki til að ná alla leið. Til að ná því markmiði að hér búi allir við jöfn búsetugæði þurfum við að halda okkur við áætlanir sem standast, fara ekki út af sporinu við dægurmálaumræðuna.

Ágætu landsmenn. Við erum svo heppin að nú er hér í landinu öflug samstillt ríkisstjórn sem hefur einhent sér í verkefnin og hefur sett skýra stefnu á að byggja upp innviði í samgöngum, menntamálum, heilbrigðismálum og málefnum barna. Með grunngildi fjármálaáætlunar, sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi, að leiðarljósi hafa verið lagðar línur til framtíðar.

Eitt helsta stef fjármálaáætlunar er stórátak í samgöngumálum. Það er mín bjargfasta trú að öflugt, traust samgöngukerfi sé grunnurinn að framtíð okkar. Stærsta tækifæri okkar sem þjóðar er að um allt land séu öflug, vel tengd, sjálfbær og sterk samfélög.

Í fjarskiptamálum er Ísland fremst í heimi á mælikvarða Alþjóðafjarskiptasambandsins. Því ber að fagna um leið og við sjáum fyrir endann á verkefninu Ísland ljóstengt sem gjörbreytir og jafnar aðstöðu landsmanna til að sinna daglegum verkefnum einkalífs og fyrirtækja. Þegar þessum mikilvæga áfanga er náð getum við í raun talað um störf án staðsetningar. Möguleikar fólks til að setja sig niður á landsbyggðinni stórbatna.

Verkefnin í samgöngumálum eru gríðarstór, en við höfum hafist handa og ætlum okkur og verðum að ná langt. Með breyttum ramma um opinber fjármál eigum við að sjá lengra fram í tímann. Fyrirsjáanleiki í fjárframlögum er mikilvægur til að forstöðumenn stofnana og sveitarfélaga geti nýtt krafta sína í fleira en að tryggja fjármögnun frá ári til árs.

Nú stefnir í að samgönguáætlun sem áður var til fjögurra og 12 ára verði til fimm og 15 ára. Við gerð hennar er horft til samþættingar samgöngu-, fjarskipta- og byggðamála. Í því felast mikil tækifæri en líka áskoranir því að allt þetta þarf að vinna saman til að árangur náist og fjármunir verði sem best nýttir.

Umhverfismál eru vissulega á dagskrá ríkisstjórnar Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Framlög til þessa mikilvæga málaflokks eru stóraukin og áhersla er á aðgerðir sem snerta mörg málefnasvið og kalla á víðtækt samráð. Í raun fléttast umhverfismálin inn í allar aðgerðir og eru okkar leiðarljós í allri vinnu.

Ágætu landsmenn. Til að takast á við framtíðina þurfum við að vera opin fyrir hugmyndum. Það er ekkert víst að það sem okkur finnst gilda í dag geri það í næstu viku, en fjárfesting í samgöngumannvirkjum er eitt mikilvægasta verkefni okkar núna til að tryggja byggð um allt land svo við getum nýtt auðlindir okkar og opna tækifæri sem við sjáum. Sum í dag en önnur eiga eftir að koma í ljós.

Framtíðin kemur. Við getum haft áhrif á hana. Ég ætla að takast á við hana með gleði, kærleika og stefnufestu. Finnst ekki fleirum það fær leið? Njótið birtunnar, ágætu landsmenn. — Góðar stundir.