almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð gerði með sér sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis. Á síðustu dögum hefur umræðan um eflingu Alþingis verið í hámæli og sýnist sitt hverjum um efndir ríkisstjórnarinnar. Ég held að margt hafi verið gert mjög vel á þessum fyrstu mánuðum, en betur má ef duga skal. Það er ábyrgð okkar þingmanna allra að efla Alþingi og virðingu þess. Já, lítum í eigin barm. Hvort sem um ræðir sokkaleista, orðræðu, bindisskyldu, símanotkun, myndatökur eða fyrirspurnir til framkvæmdarvaldsins þurfum við að huga að því að allar okkar aðgerðir séu til þess fallnar að auka virðingu þingsins og bæta afköst okkar og árangur.
Ég geri ráð fyrir því að fæstir heima í stofu hafi mikinn áhuga á röfli okkar um form, umgjörð og ásýnd Alþingis. Fólkið, kjósendur okkar, vill einfaldlega að við vinnum vinnuna okkar með sómasamlegum hætti og tryggjum samkeppnishæfni lands og þjóðar. Við eigum og ætlum að búa þannig um hnútana að hér sé gott fyrir alla að lifa og starfa.
Nýverið fóru fram sveitarstjórnarkosningar. Ég vil óska öllum þeim sem hlutu kosningu til sveitarstjórnar til hamingju með það verkefni og óska þeim velfarnaðar í störfum sínum. Ég vil líka óska eftir góðu samstarfi við sveitarfélögin því að ég tel einstaklega mikilvægt að við hér, hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar, eigum gott samstarf við sveitarstjórnarmenn.
Það er einstaklega ánægjulegt hversu jafn hlutur kynjanna er heilt yfir í nýjum sveitarstjórnum, en hlutur kvenna er nú 47% og hefur aldrei verið hærri.
Við Íslendingar höfum náð langt í jafnréttismálum, en það má aldrei slaka á í þeim efnum enda margsannað mikilvægi þess að nýta krafta beggja kynja, hvort sem er í stjórnmálum eða á vettvangi atvinnulífsins. Fjölbreytileiki skiptir nefnilega máli.
Ísland er sterk rödd á alþjóðavettvangi þegar kemur að jafnréttismálum. Það munum við tryggja áfram og hefur hæstv. utanríkisráðherra nú skipað sérstakan sendiherra jafnréttismála enda eru jafnréttismálin einn af hornsteinum utanríkisstefnu okkar.
Fyrst við tölum um eflingu Alþingis og jafnréttismál var Alþingi Íslendinga fyrsta þjóðþingið til að taka þátt í svokallaðri rakararáðstefnu, en önnur þjóðþing hafa nú sýnt því áhuga að fylgja í kjölfarið.
Fyrir okkur þingmönnum liggur að staðfesta breyttar siðareglur Alþingis þar sem tekið er sérstaklega á kynferðislegri áreitni. Bæði rakararáðstefnan og breyttar siðareglur eru til komnar vegna áskorunar frá karlþingmönnum í kjölfar #metoo-byltingarinnar. Ég hygg að það staðfesti svo ekki verði um villst vilja íslenskra karlmanna til að taka þátt í HeForShe-átaki Sameinuðu þjóðanna sem gengur út á viðurkenningu á því að það er verkefni okkar allra að tryggja jafnrétti kynjanna.
Virðulegur forseti. Loftslagsmálin eru ekki síður mikilvæg en jafnréttismálin í alþjóðlegu samhengi. Loftslagsmál og umhverfismál almennt eru að mínu viti eitt af allra stærstu verkefnum framtíðarinnar. Norðurslóðaríkið Ísland á gríðarlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að loftslagsmálum enda hefur hitastig hvergi hækkað jafn mikið og á norðurslóðum. Matarkistan okkar hér allt í kringum landið hefur orðið fyrir og mun halda áfram að verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga, svo eitt dæmi sé tekið.
Þá er það líka mikið efnahagsmál, bæði beint og óbeint, að við uppfyllum markmið okkar í Parísarsamkomulaginu. En ríkisstjórnin vill ganga enn lengra og stefnir að kolefnishlutlausu Íslandi í síðasta lagi árið 2040. Það er metnaður. Ég hygg að hér á þingi sé almennur samhljómur um mikilvægi þessara markmiða. Þá þurfum við að sameinast um aðgerðir til að ná þeim fram. Eitt af því er klárlega að tryggja örugga dreifingu raforku um landið allt og tryggja þannig orkuskipti. En verkefnin eru að sjálfsögðu mun fleiri.
Virðulegur forseti. Það er verkefni okkar allra að tryggja að á Íslandi verði áfram gott að búa. Tryggja þarf aukna framleiðni og fjárfestingu í öllum geirum hagkerfisins í sátt við náttúruna. Þannig sköpum við grundvöll fyrir áframhaldandi bættum lífskjörum og aukinni velferð, en það má aldrei vera bara bætt velferð sumra því að á Íslandi á að vera gott að búa fyrir alla. — Góðar stundir.