almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Við í Flokki fólksins vorum kjörin á þing til að vinna þjóðinni gagn, rétt eins og allir þingmenn í þessum sal. Þar sem við erum ekki aðilar að ríkisstjórninni verða mörg okkar verk ekki afgreidd hér í þinginu. Þegar við erum að berjast í að koma okkar málum áfram verðum við oft vör við að þingmenn úr öllum flokkum eru sammála okkar málum. Þetta eru hin mætustu mál, segja þeir, og tala jafnvel um að leiðrétta þurfi þau mistök sem orðið hafi. Það er því hálfankannalegt að sjá jafnvel slík mál fryst í þinginu, látin hverfa, eytt á umhverfisvænan hátt, ef svo mætti að orði komast. Stjórnmálin eru nefnilega þannig að það er ekki sama hvaðan gott kemur. En málflutningur Flokks fólksins hefur áhrif og mun hafa áhrif. Aðrir flokkar hafa tekið upp okkar mál og ég tel að mörg þeirra muni hljóta brautargengi áður en yfir lýkur.
Nú er sumarið komið á fleygiferð. Núverandi ríkisstjórn hefur sameinast um að halda kyrru fyrir. Hún hefur sameinast um að halda völdum og sökum samsetningar ríkisstjórnarinnar hefur hún ákveðið að aðhafast ekkert það sem skiptir í raun einhverju máli. Ef þau tækju til hendinni og gerðu eitthvað róttækt á hvorn veginn sem væri gæti hægri armurinn eða eftir atvikum sá vinstri fengið verulegar innantökur. Þess vegna sitjum við nú uppi með kyrrstöðustjórn sem hamast við að gera sem allra minnst og það á mesta góðæristímabili Íslandssögunnar.
Góðir áheyrendur. Í kosningabaráttunni, bæði fyrir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningarnar og fyrir alþingiskosningarnar síðustu, varð frambjóðendum tíðrætt um að efla innviði. Hvað er átt við með því? Er þetta eitthvað sem hönd er á festandi? Er eitthvert mark takandi á stjórnmálamönnum sem hafa þetta eitt fram að færa? Þótt við teljum okkur flest vita hvað átt er við er hugtakið afskaplega óljóst og erfitt að átta sig á því hvað felst nákvæmlega í slíkum loforðum. Þess vegna er líka auðvelt að komast hjá því að efna þau.
Samgöngumálin eru mörgum vegfarendum hugleikin og ekki að ástæðulausu. Vegirnir í landinu eru að molna niður og þeir kalla alls staðar á bæði viðhald og nýframkvæmdir. Það hefur verið áætlað að brýnar vegaframkvæmdir út úr höfuðborginni, inni í henni og úti á landi kosti u.þ.b. 250 milljarða. Hvert er útspil ríkisstjórnarinnar sem ýtti gildandi samgönguáætlun til hliðar og kaus að fjármagna hana ekki að fullu? Útspil ríkisstjórnarinnar var 5,5 milljarðar á ári í þrjú ár. Síðan á að seilast í varasjóðinn, hálftæma hann og hirða úr honum 4 milljarða til að kítta í verstu holurnar í sumar. Er þetta árangur sem mætti stæra sig af? Þetta er í raun lítill plástur á gapandi sár. Nei, herra forseti, þarna er verk að vinna og sannarlega þarf að bretta upp ermarnar.
Löggæslan er annar málaflokkur sem flokkast undir innviði. Hver er staða lögreglunnar? Hún hefur árum saman kallað eftir auknum mannskap til sýnilegrar og almennrar löggæslu. Hefur verið lagt við hlustir? Lögreglumenn í landinu eru færri nú en fyrir 11 árum og þá var talið að vantaði yfir 200 lögreglumenn í lögreglulið landsins. — Góðir Íslendingar, góðar stundir.