samkeppnisstaða Íslands.
Herra forseti. Í nýkynntri úttekt Viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni ríkja kemur í ljós að Ísland fellur niður um fjögur sæti og erum við núna í 24. sæti. Danmörk, Noregur og Svíþjóð eru langt fyrir ofan okkur, þ.e. í 6.–9. sæti. Samkeppnishæfni lýsir því umhverfi sem ríki stuðla að til að fyrirtæki geti skapað verðmæti á sjálfbæran hátt. Sterk tengsl eru á milli samkeppnishæfni og lífskjara.
Í efnahagslegri frammistöðu fellur Ísland um heil 18 sæti. Við erum í 57. sæti. Þetta er mesta lækkun á efnahagslegri frammistöðu í löndum Vestur-Evrópu. Hluti af þessu falli er vegna blessaðrar krónunnar. Raungengi hennar hefur aldrei verið eins sterkt. Skilvirkni hins opinbera minnkar einnig milli ára og fellur Ísland þar úr 8. sæti niður í 16. Skilvirkni atvinnulífsins batnar hins vegar lítillega en innviðir standa í stað og er Ísland í 17. sæti.
Ísland er síðan í 49.–56. sæti af 63 löndum þar sem flutningur starfsemi frá landinu er beinlínis ógn við hagkerfið. Það er athyglisvert að sá þáttur sem íslenskir stjórnendur telja hvað minnst eftirsóknarverðan við Ísland er þátturinn sem kallast hæfni stjórnvalda. Þetta skorar neðst.
Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvaða aðgerðum hún muni beita sér fyrir svo hægt sé að snúa þessari þróun við. Hvernig mun hún efla hér innviði, skilvirkni og framleiðni og bregðast við einum helsta dragbít íslensks samfélags sem er krónan?