148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

samkeppnisstaða Íslands.

[10:38]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Einmitt varðandi fjármálaáætlunina, vegna þess að innviðirnir eru eitt af því sem dregur okkur niður, sjáum við að Landspítalinn hefur álitið að það vanti 87 milljarða til viðbótar. Samtök iðnaðarins benda á að samgöngupeningarnir í fjármálaáætlun dugi ekki einu sinni til að ná tíu ára meðaltali sem við höfum sett í málaflokkinn. Háskólinn, fyrst hæstv. forsætisráðherra nefnir hann, fær bara helming af því sem lofað er í stjórnarsáttmálanum. Og hér hef ég ítrekað minnt á það að Öryrkjabandalag Íslands kallar þessa blessuðu áætlun ávísun á fátækt og eymd.

Og viti menn, meiri hluti fjárlaganefndar er að afgreiða núna frá sér þessa fjármálaáætlun sem er upp á 5.000 milljarða — það er engin breyting lögð til. Hlutverk Alþingis sem stimpilstofnunar þessara ráðherra hefur aldrei verið eins ljóst. Þeir hnika ekki einu sinni 1 milljarði til. Þetta er algert sjónarspil, öll þessi vinna fjárlaganefndar. Þau eru búin að hitta fjölmarga gesti og fá 71 umsögn, engin breyting. Hvernig stendur á því að það virðist enginn sjá þessa innspýtingu í innviði (Forseti hringir.) nema ráðherrarnir?

Og svo er það krónan. Krónan hefur verið helsti dragbítur íslensks samfélags, gengið hefur aldrei verið eins sterkt og nú er og það hefur alltaf fallið. Við slíkar aðstæður er óvarlegt að gera ráð fyrir óbreyttu raungengi en það er forsenda þessarar áætlunar.