148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

beiðni um lyf.

[10:46]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Svar mitt er þegar fram komið. Það eru faglegar forsendur sem liggja til grundvallar, bæði hjá sérfræðilækninum sem hefur með þetta tiltekna mál að gera og önnur sambærileg og síðan hjá lyfjanefnd Landspítalans miðað við þær forsendur sem þar liggja fyrir; að ákveða lyfjameðferð í hverju tilviki. Það er ekki ráðherra, ekki undir neinum kringumstæðum, að grípa inn í slíkar ákvarðanir.