148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

veiðigjöld.

[10:47]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil beina spurningu til hæstv. forsætisráðherra í tengslum við það frumvarp sem liggur nú fyrir þingi um lækkun á veiðigjöldum. Það væri í sjálfu sér ekkert athugunarvert við það ef við værum að ræða raunverulega lækkun á veiðigjöldum til lítilla eða minni útgerða sem raunverulega þurfa á því að halda en það er ekki verið að því. Eins og við sjáum vel á forsíðu Fréttablaðsins í dag fer helmingur lækkunarinnar til tíu stærstu útgerðarfyrirtækja landsins. Það er hægt að bæta því við að ef við förum upp í 20 stærstu útgerðarfyrirtæki landsins fá þau ríflega 80% af lækkuninni.

Á síðustu metrum þingsins er erfitt að fá svona frumvarp sem er keyrt beint í gegnum þingið, það á að keyra þetta ofan í kokið á okkur og við verðum að gleypa það hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þess vegna langar mig að beina tveimur spurningum til hæstv. ráðherra, a.m.k. til að byrja með: Mun hæstv. ráðherra, sem gegnir forystuhlutverki í íslensku samfélagi og íslenskum stjórnmálum, beita sér fyrir breytingum á frumvarpinu sem geta leitt til meiri sátta á síðustu dögum í þá veru að við framlengjum annars vegar heimildina til að taka veiðigjöld og hins vegar að við reynum að fókusera beint á litlu fyrirtækin í gegnum persónuafsláttinn? Er hægt að finna leiðir til að við náum sátt um þetta mál þannig að við getum síðan rætt nýtt fyrirkomulag í haust í fyrsta lagi? Með því teldi ég hana sýna vilja til annarra og betri vinnubragða sem ég treysti henni til að hafa forgöngu um hér á þingi.

Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra, ekki síst í því ljósi að sjávarútvegurinn er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein fyrir okkur, mikil framleiðni og verðmætasköpun: Mun hún beita sér fyrir því að það verði að nýju skipuð þverpólitísk sáttanefnd til að við reynum að ná raunverulegri sátt um sjávarútveginn? Á síðasta ári var slík nefnd starfandi, það var ágreiningur (Forseti hringir.) innan nefndarinnar en það voru engu að síður ákveðin leiðarljós þar sem að mínu mati er hægt að taka áfram (Forseti hringir.) og reyna að ná þeirri sátt og ákveðinni málamiðlun sem við þurfum að ná um sjávarútveginn til lengri sem skemmri tíma.