veiðigjöld.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Nú hefur komið fram í mínu máli að ég skil vel þá gagnrýni stjórnarandstöðunnar í þingsal á að fá hér inn frumvarp sem felur í sér ákveðnar grundvallarbreytingar á útreikningi veiðigjalda með svo skömmum fyrirvara. Ég skil mætavel þá gagnrýni og tel mikilvægt að við ræðum þetta mál í samhengi við önnur mál á þingi og hef þess vegna boðað til fundar með formönnum flokkanna núna á eftir til að við getum rætt þinghaldið fram undan og þar með talið þetta mál.
Hafandi sagt það vil ég þó segja að ég hefði átt von á að flötur væri á því að ná meiri samstöðu um þau markmið sem birtast í frumvarpinu, þ.e. þau markmið að færa útreikning veiðigjalda nær í rauntíma. Ég veit að hv. þingmaður, þegar hún gegndi embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, talaði fyrir því að það væri ekki gott að við miðuðum útreikning veiðigjalda við þriggja ára gamlar afkomutölur. Það er það kerfi sem við höfum haft, m.a. vegna þess að nýrri tölur hafa ekki verið til staðar. Ef við metum það hins vegar svo að við séum komin með nýrri grunn þurfum við auðvitað að taka pólitíska umræðu um hvort þá sé ekki eðlilegt að miða gjöldin við nýrri afkomutölur, þ.e. ef við erum sammála þeirri forsendu að veiðigjöldin eigi að vera afkomutengd.
Fyrir mér snýst þetta mál fyrst og fremst um þetta tvennt, þ.e. að veiðigjöldin eigi að vera afkomutengd, og ég segi já við þeirri spurningu, og að eðlilegt sé að miðað útreikninginn við þá mögulegu nýjustu útreikninga sem við eigum. Við vitum það því að hv. þingmaður lét sjálf setja af stað vinnu við skoðun á afkomu sem sýnir að hún hefur versnað verulega hjá útgerðinni og það liggur fyrir að við sjáum fram á erfiða tíma þar.
Að þessu sögðu hins vegar, í ljósi þess hvernig málið er inn komið, er ég reiðubúin til þess að við förum nú yfir það á vettvangi formanna flokkanna (Forseti hringir.) og sömuleiðis innan atvinnuveganefndar hvort unnt sé að skapa meiri sátt um málsmeðferðina (Forseti hringir.) því að ég átta mig algerlega á því að svona breytingar kalla á umræðu.