veiðigjöld.
Herra forseti. Ég vil líka segja, af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega stöðu minni útgerða, að það er auðvitað svo að ég og minn flokkur höfum lengi haft áhyggjur af því að samþjöppun í sjávarútvegi sé ekki góð fyrir greinina, þ.e. að of mikil samþjöppun í sjávarútvegi sé hvorki góð fyrir greinina né fyrir byggðir þessa lands. Þess vegna var vægi afsláttar fyrir þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki aukið í frumvarpinu.
Hv. þingmaður nefndi í fyrri fyrirspurn sinni möguleika á einhvers konar sáttanefnd. Nú er það svo að við höfum örugglega deilt um sjávarútveg jafn lengi og við hv. þingmaður höfum verið hér, sem eru orðin allnokkur ár samanlagt.
En við erum í vinnu og ég vona að allir flokkar á Alþingi séu af heilum hug í þeirri vinnu — og minnst var á hana hér í gær, í eldhúsdagsumræðum — um það hvort við gætum til að mynda náð saman um auðlindaákvæði í stjórnarskrá, hvort við getum náð saman um það.
Fólk getur haft sína skoðun á því að við séum að reyna að afgreiða áfanga í endurskoðun stjórnarskrárinnar, en ég er þeirrar gerðar að ég vil frekar sjá einhvern árangur af vinnunni en að allt snúist um allt eða ekkert, eins og mér finnst því miður allt of rík tilhneiging til í stjórnmálum í dag.