148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

samgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.

[10:55]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil beina orðum mínum til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í sambandi við samgöngumál á sunnanverðum Vestfjörðum. Árið 2006 var fólk tilbúið að fara í aðgerðir í samgöngumálum í Gufudalssveit um Teigsskóg, en síðan eru liðin 12 ár. Sú saga er í raun og veru sorgarsaga hvernig það mál hefur þróast og hvar það er statt í dag. Það er of langt mál að fara yfir það allt saman og hafa menn í rauninni ekki fundið neina leið til að liðka fyrir málinu.

Ég er með þá spurningu til ráðherrans hvort ráðherrann hafi hugsað um aðgerðir til að liðka fyrir í þessu máli. Þá er ég að hugsa um Breiðafjarðarferjuna Baldur sem gengur yfir Breiðafjörð, fer tvær ferðir á dag á sumrin á virkum dögum og eina ferð á veturna, hvort ráðherrann hafi hugsað út í það að ganga til viðræðna við aðila og veita stuðning til þess að fjölga ferðum.

Nú er ljóst að samgöngur til Vestmannaeyja, sem er eyja, eru í raun og veru í betra ástandi en samgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar hefur verið gefið vel í í sambandi við ferjusiglingar þangað.

Hyggst ráðherrann gera eitthvað í þessu máli? Hefur ráðherrann hug á að stuðla að fjölgun ferða með Breiðafjarðarferjunni Baldri?