samgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Vonandi gengur hann í að skoða málið. Ég ætlaði ekki endilega að fara að bera saman samgöngur til Vestmannaeyja og á sunnanverðum Vestfjörðum heldur geta þess að samgönguöryggi hefur oft og tíðum verið mjög lítið á veturna á sunnanverðum Vestfjörðum. Ég hef heyrt að aðilar hafa talað saman um hvernig þeir sem eru með þungaflutninga, fiskflutninga, laxeldið, þeir fyrir vestan, geti mætt áætlunum flóabátsins yfir Breiðafjörð þannig að þeir geti nýtt sér þær ferðir. Það hefur ekki gengið sem skyldi og því kem ég með þessa spurningu til ráðherrans og eins það hvort ekki megi eiga von á því að málið komist á rekspöl til að koma til móts við þá staðreynd. Þungaflutningar eru það sem fer verst með veginn um Teigsskóg og Gufudalssveit. Það er alveg kristaltært, (Forseti hringir.) eins og náttúrlega alla aðra vegi. Bara þetta atriði myndi létta á málinu.