148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

vegur um Gufudalssveit.

[11:09]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Svo skal hamra járnið meðan það er heitt. Ég ætla aftur vestur í Gufudalssveit.

Pattstaða er við framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Gufudalssveit. Við erum að tala um 20 ára sögu vandræðagangs í máli sem hefur ekki náð eðlilegum framgangi vegna úrræðaleysis stjórnsýslunnar sem vandar sig sérstaklega við að stíga varlega til jarðar í málinu, svo varlega að hún svífur um í lausu tómarúmi. Því hefur hreinlega verið unnið gegn eðlilegum samgöngubótum á sunnanverðum Vestfjörðum. 20 ár innihalda fimm kjörtímabil sveitarfélaga og þessi tími nálgast vaxtartíma mosa á steini.

Ekki þarf að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í vegabætur á svæðinu sem um ræðir enda ber gamli malarvegurinn um Gufudalssveit ekki lengur þá umferð sem um hann fer og skapar alvarlega hættu. Óásættanleg töf hefur nú þegar orðið á málinu sem hefur velkst um í kerfinu svona lengi.

Á meðan reyna íbúar sunnanverðra Vestfjarða að halda uppi nútímaatvinnuvegum og lífsháttum. Eins og í öðrum landshlutum eru samgöngur forsenda þess. Ef ekki verður ráðin bót á samgöngum í Gufudalssveit er verið að hefta eðlilegan framgang atvinnulífs á svæðinu.

Íbúar og fyrirtæki á svæðinu hafa haft frumkvæði að uppbyggingu atvinnu sem leggur frekari grunn að sjálfbærni samfélagsins og þá grípur kerfið um kverkar þess.

Því vil ég spyrja hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra: Sér hæstv. ráðherra fyrir sér einhverja lausn til að höggva á þennan hnút sem málið virðist komið í? Ef svo er, sem vonandi er, hvenær má vænta þess að vegaframkvæmdir fari af stað á þessu svæði?