148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

tilkynning.

[13:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill upplýsa það um fundarhaldið að nú að afloknum atkvæðagreiðslum um 2. til og með 7. dagskrármálið verður tekið fyrir 11. dagskrármálið, aukatekjur ríkissjóðs, og mun hæstv. ráðherra mæla fyrir því máli en að því loknu verður gert fundarhlé fyrir fundi þingflokka.