148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

meðferð sakamála.

628. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Páll Magnússon) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir breytingu á lögum um meðferð sakamála, með síðari breytingum, um áfrýjun dóms til Landsréttar eftir endurupptöku mála. Þetta er breytingartillaga frá allsherjar- og menntamálanefnd, að í stað orðsins „Hæstaréttar“ í 2. mgr. 189. gr. og 3. mgr. 191. gr. laganna kemur: Landsréttar.

Í greinargerðinni sem fylgir kemur skýrt fram af hvaða ástæðum mælt er fyrir þessu. Þetta er smávægileg leiðrétting, eiginlega á misritun sem þarna varð, þ.e. það kemur einfaldlega Landsréttur í stað Hæstaréttar í þessari tilteknu grein.