kjararáð.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um brottfall laga um kjararáð, nr. 130/2016, með síðari breytingum.
Flutningsmenn eru meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar.
Í greinargerð kemur fram að ríkisstjórnin hafi ákveðið í janúar síðastliðnum, að höfðu samráði við heildarsamtök á vinnumarkaði, að skipa starfshóp um málefni kjararáðs. Forsætisráðherra skipaði starfshópinn 23. janúar 2018 og átti hann að bera saman fyrirkomulag um ákvörðun launa hjá kjörnum fulltrúum, dómurum og embættismönnum í nágrannalöndum og leggja fram tillögur að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðana kjararáðs væri annað fyrirkomulag talið líklegra til betri sáttar í þjóðfélaginu til framtíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samningsréttar. Þá átti starfshópurinn að taka til skoðunar úrskurði kjararáðs, meta með hliðsjón af launasetningu og launabreytingum þeirra stétta sem samningsfrelsis njóta og þeirri launastefnu sem samið var um við meginþorra launafólks og eftir atvikum leggja fram tillögur um úrbætur.
Starfshópurinn skilaði skýrslu í febrúar síðastliðnum. Í greinargerðinni er vitnað í þá skýrslu og helstu niðurstöðu starfshópsins og einnig þær tillögur sem starfshópurinn telur rétt að verði viðhaft, þ.e. fyrirkomulag við launaákvarðanir.
Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu er nú unnið að gerð frumvarps þar sem kveðið er á um að ákvörðun launa þeirra sem nú falla undir úrskurðarvald kjararáðs verði hagað með hliðsjón af þeim tillögum um fyrirkomulag sem starfshópurinn um málefni kjararáðs lagði til í skýrslu sinni. Með því frumvarpi er stefnt að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðana þeirra sem nú heyra undir ákvörðunarvald kjararáðs samanber 1. gr. laga nr. 130/2016. Gert er ráð fyrir því að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi í haust eftir samráð við þá sem frumvarpið snertir fyrst og fremst.
Skipunartími núverandi ráðsmanna kjararáðs rennur út 30. júní næstkomandi. Í ljósi þess er nú unnið að gerð frumvarps þar sem stefnt er að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðana eins og áður segir. Með 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í þessu fyrirliggjandi frumvarpi er lagt til að þrátt fyrir að ákvæði 1. gr. um niðurfellingu laga um kjararáð skuli allir sem falla undir úrskurðarvald kjararáðs þegar lög þessi öðlast gildi halda kjaraákvörðunum samkvæmt lögum nr. 47/2006 og lögum 130/2016 þar til viðkomandi aðili hefur tekið nýja ákvörðun um laun og starfskjör. Af ákvæðinu leiðir að laun þeirra sem nú falla undir ákvörðunarvald kjararáðs verða ekki endurskoðuð á þessu ári.
Eins og fram kemur á bls. 11 í skýrslu starfshóps forsætisráðherra er launaþróun innan þess hóps sem nú fellur undir ákvörðunarvald kjararáðs mjög ólík. Til dæmis hafa héraðsdómarar fengið 35% hækkun en ráðherrar 64% frá þeim tíma sem rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins var gert síðla árs 2015.
Ef litið er til lengri tíma, t.d. starfstíma kjararáðs frá árinu 2006, blasir hins vegar allt önnur mynd við, en á því tímabili hafa laun þessara aðila þróast með svipuðum hætti. Jafnframt kemur fram að verði ekki um frekari endurskoðun að ræða á árinu 2018, þ.e. laun haldist óbreytt frá síðustu úrskurðum kjararáðs til ársloka 2018, verður launaþróun kjararáðshópsins að meðaltali við þau mörk sem rammasamkomulag milli aðila vinnumarkaðarins frá 27. október 2015 gerði ráð fyrir.
Viðmiðunartímabil rammasamkomulagsins er ekki liðið. Því er ekki hægt að segja nákvæmlega til um hversu miklar launabreytingar verða á tímabilinu, en fram kemur í skýrslunni áðurnefndri að nú liggi þó fyrir að launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 36% á tímabilinu frá nóvember 2013 til janúar 2018. Milli áranna 2013 og 2016 hækkuðu meðallaun ríkisstarfsmanna á ársgrundvelli, þ.e. regluleg laun, um 31% og á árinu 2017 áætlaði starfshópurinn að launavísitala ríkisstarfsmanna hefði hækkað um 7%. Komi hins vegar til þess að ný lög hafi ekki tekið gildi fyrir 1. maí 2019 er lagt til í ákvæðinu að laun hækki frá og með þeim degi miðað við hlutfallslega hækkun á reglulegum meðallaunum ríkisstarfsmanna næstliðið almanaksár.
Samkvæmt upplýsingum frá kjararáði bíða tugir mála frá forstöðumönnum opinberra stofnana sem heyra undir ákvæði 39. gr. a laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, afgreiðslu kjararáðs. Er þar einkum um að ræða mál sem heyra undir 5. mgr. ákvæðisins til bráðabirgða í lögum um kjararáð, nr. 130/2016, þar sem segir að málum sem tekin hafa verið til meðferðar við gildistöku laganna skuli lokið samkvæmt ákvæðum eldri laga.
Miðað við málsmeðferðartíma kjararáðs má ætla að ráðinu takist ekki að ljúka afgreiðslu nema örfárra þeirra mála sem send voru ráðinu fyrir núgildandi laga fyrir 1. júlí næstkomandi þegar skipunartími ráðsins rennur út.
Með 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða er því lagt til að málum þeirra aðila sem falla undir 39. gr. a laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins en eru með mál til meðferðar hjá kjararáði verði lokið á grundvelli þeirrar lagagreinar. Af því leiðir að kjararáð mun ekki taka ákvörðun um laun þeirra aðila líkt og gert var ráð fyrir í 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 130/2016.
Virðulegur forseti. Ég legg þetta frumvarp fram til umræðu og óska eftir að því verði síðan að þeirri umræðu lokið vísað til 2. umr.