148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

aðgengi að stafrænum smiðjum.

236. mál
[16:44]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Mig langar að þakka fyrir þá góðu vinnu sem hefur átt sér stað í nefndinni og fyrir þetta mál almennt. Ég frétti af því að það væri í vinnslu og bað um að fá að vera með á því vegna þess að málið tengist mér persónulega. Það vill þannig til að verkefnið kom til Íslands eftir að ég hafði rekist á kynningarmyndband og upplýsingar um það á netinu og lagði það til við Frosta Gíslason, félaga minn í Vestmannaeyjum, sem nú vinnur við rekstur smiðjunnar þar. Við ákváðum að slá til og sækjast eftir fjármagni til að koma verkefninu af stað. Tekið var mjög vel í það hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og fjármagn fengið í mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á þorskkvóta sem voru í gangi vegna slæms árferðis þar. Við gangsettum verkefnið svo 2007 með fínum árangri.

Hugmyndin var sú að tækni væri að verða til, þ.e. stafræn stýring, stafræn framleiðslutækni og stjórn tækja, sem gæti í rauninni búið til hvað sem er. Í upprunalega pakkanum var talað um leiserskera, fræsivélar af mismunandi stærðum og gerðum, vínylskera og rafrásabúnað, þannig að hægt væri að smíða hvers konar rafrásir. Það fannst mér gríðarlega mikilvægt sem leið til að opna á slíka tækni til fleiri einstaklinga. Sjálfur hafði ég fengið að læra forritun á sínum tíma einmitt vegna þess að tækin voru aðgengileg. Hugmyndin að læra að búa til hvaða áþreifanlega hlut sem er var mjög eftirsóknarverð af sömu ástæðum.

Svo var það hin hliðin á peningnum. Þetta leit út fyrir að vera fyrsta skrefið í átt að nýrri iðnbyltingu. Núna er talað um fjórðu iðnbyltinguna og er alveg hægt að gagnrýna þá hugmyndafræði á ýmsa vegu. En ef við göngum út frá því að þetta sé iðnbylting af einhverju tagi verðum við að skoða hvaða afleiðingar iðnbyltingar hafa haft í gegnum tíðina. Ein afleiðingin hefur verið sú að misskipting fólks hefur aukist. Þeir sem búa yfir tækninni, sérstaklega þeir sem búa snemma yfir henni, hafa fleiri tækifæri til að stækka og vaxa og bæta hagkerfi sitt en þeir sem fá tæknina seint eða aldrei.

Þá kom upp sú spurning hvernig við gætum tryggt öllum aðgang að tækninni sem allra fyrst í ferlinu, áður en þrívíddarprentun yrði daglegt brauð og við værum komin á það stig að í staðinn fyrir að sprauta smá bræddu plasti á einhvern stað og byggja þannig upp þrívíddarlíkan, eins og gert er í dag, væri hægt að sprauta atómum saman og búa til nákvæmlega hvað sem væri, það væri t.d. hægt að fara á netið og ná sér í kjúklingasamloku og prenta hana út og borða hana. Auðvitað er þetta bara vísindaskáldskapur í dag en það er engin ástæða fyrir því að þetta þurfi alltaf að vera það.

Þá er spurningin: Ef hægt er að búa til hvað sem er með svo til engum jaðarkostnaði, hverjir munu stjórna tækninni og hverjir munu verða eftir? Og ef fólk hefur möguleika á að undanskilja einhvern frá tækninni, hvernig getur það verið siðlegt? Af þeim sökum fór ég í margar ferðir í tengslum við þá vinnu og tók m.a. þátt í að byggja stafræna smiðju í Jalalabad í Afganistan, Pune á Indlandi og víðar. Þetta gekk alltaf út á það sama, að skilja eftir getuna á hverjum stað til þess að læra á tæknina jafnóðum og hún þróaðist og taka þátt í þróuninni líka. Það þýðir í grundvallaratriðum að krakkar, oft mjög ungir krakkar, læra bæði með höndunum og í gegnum slíka vinnu grunnatriði þess að geta síðar lært verkfræði, eðlisfræði, efnafræði o.s.frv. Þetta er á vissan hátt undirbúningur fyrir frekara nám. Á sama tíma, af því að þetta er opið almenningi, leiðir það af sér að frumkvöðlar og fyrirtæki sem starfa í hverju bæjarfélagi fyrir sig hafa möguleika á sækja í slíka tækni til að gera frumgerðir að nýjum hugmyndum, til að leysa vandamál sem þau glíma við eða til prufukeyra nýjar vörur og fara í vöruþróun.

Það er ákveðin bylting í sjálfu sér. Til að finna sambærilega byltingu þarf að horfa aftur í sögunni og til staða eins og t.d. Charleston í Suður-Karólínu þar sem bærinn byggðist á sínum tíma, fyrir mörgum öldum síðan, upprunalega upp í kringum sameiginlegar smiðjur sem allur almenningur hafði aðgang að. Þetta er náttúrlega liðin tíð en það er mjög rík hefð í mörgum samfélögum — þótt ég hafi að vísu ekki fundið hliðstæðu á Íslandi í sögunni — fyrir sameiginlegum formum smiðja, tækja og svoleiðis sem fólk getur fengið aðgang að og sem auðvelda öllum í samfélaginu að komast lengra. Og við höfum fengið ýmsar sögur. Nú eru stafrænar smiðjur bókstaflega úti um allt. Þær skipta held ég hundruðum frekar en tugum. Það hafa orðið til alls konar samstarfsverkefni.

Í Amsterdam var á einhverjum tímapunkti verið að þróa auðveldar leiðir til að búa til gervilimi, hendur, fætur og álíka, fyrir fólk og sérstaklega á stöðum eins og í Kambódíu þar sem mikið er af jarðsprengjum, þetta er óleyst vandamál þar. Hugmyndin var að ef hægt væri að taka mælingar og byggja viðeigandi lausnir fyrir fólk á staðnum með litlum tilkostnaði myndi það gerbreyta lífi þess.

Svo er það Indland, eins og ég hef nefnt. Það er þess virði að nefna verkefni Anil Gupta, Honey Bee Network held ég að það heiti, sem tengir fátækt fólk sem býr við mjög vondar aðstæður við smiðjur af þessu tagi og gefur þeim færi á að leysa eigin vandamál, hver svo sem þau eru.

Í Barcelona hefur verið mjög ríkt samstarf við borgararkítektinn um áframhald á þróun borgarinnar og uppbyggingu verkefna þar. Þar hafa sterk tengsl milli arkitekta og stafrænu smiðjunnar leitt af sér mun hraðari þróun en annars væri.

Það er því ótrúlega margt hægt að gera með innviðunum um leið og þeir eru komnir. Ég ætla ekki að lengja mál mitt með frekari sögum þótt ég gæti haldið áfram í allan dag.

Fyrir mér er gríðarlega spennandi að verkefnið hafi þróast úr því að vera lítið tilraunaverkefni í Vestmannaeyjum, sem á rætur sínar að rekja til lítils tilraunaverkefnis í suðurhluta Boston, í það að vera einni atkvæðagreiðslu frá því að verða opinber stefna á Íslandi, að fara þá leið. Það er eitthvað sem ég held að sýni hvert við sem þing ættum að vera að fara varðandi umræður um fjórðu iðnbyltinguna eða komandi tækni og framfarirnar sem eiga sér stað. Við höfum möguleika á því að taka góðar fyrirmyndir annars staðar frá og útfæra þær hér, gera þær betri, ef við mögulega getum, en alltaf að miða að því að taka bestu hugmyndirnar, hvaðan sem þær koma, og nota þær til að lyfta Íslandi eins hátt upp og hægt er, þannig að þegar næsta iðnbylting kemur verðum við alla vega ekki síðust til að fá tæknina í hendurnar.