148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

aðgengi að stafrænum smiðjum.

236. mál
[16:54]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að hafa þetta örstutt en ég verð að koma hér upp og þakka flutningsmönnum þingsályktunartillögunnar kærlega fyrir framsýnina, dug og árangur í því að koma þessu verkefni þetta langt, og líka nefndinni. Það vill svo til að þetta mál snertir mig djúpt. Það hefur sennilega verið árið 2010 eða 2011 að ég var í einum virtasta listaháskóla í heimi í Edinborg að ljúka námi og rambaði á þrívíddarprentun á netinu og möguleikana í kringum hana. Ég varð algerlega hugfangin af þessari tækni og þeim möguleikum sem hún gat boðið upp á. Það er ekki lengra síðan en 2010 eða 2011 og ég man að fólk vissi ekki hvað ég var að tala um. Fólk hafði aldrei nokkurn tíma áður heyrt minnst á þrívíddarprentun. Þá var hægt að kaupa eigin heima-þrívíddarprentara sem maður hálfpartinn setti saman heima hjá sér, á mjög hráu stigi þá. Þannig að mér finnst alveg stórkostlegt að standa hér örfáum árum síðar á virtustu stofnun Íslands og verða vitni að því í eigin persónu að sú stofnun sé í takt við tímann og tíðarandann og jafnvel á undan. Ég gæti staðið hér í marga daga og dásamað stafrænar smiðjur og möguleikana í þeim, hvað þær geta boðið upp á. Ég myndi hafa mikinn áhuga á að gera það. En ég held að það sé óþarfi. Það virðist vera ofsalega mikil sameining og jákvæðni gagnvart þessu verkefni á þingi. Ég þakka líka fyrir ræðu hv. þm. Albertínu Friðbjargar Elíasdóttur og eldmóðinn í henni, greinilegt að hún er með á hreinu hvað þetta þýðir líka.

En ég ætla aðeins að tala um möguleikana í kringum þetta. Hv. þm. Smári McCarthy minntist á möguleikana, að kannski yrði í framtíðinni hægt að mata atómum inn í svona vélar og prenta út mat, þótt það tilheyrði örugglega vísindaskáldskap enn eins og staðan væri núna. Hins vegar er nú verið að þróa í kringum sjávarfangið okkar — ég er ekki alveg nógu vel að mér í nákvæmlega hvernig þetta er útfært, en afurðir okkar Íslendinga, sjávarafurðir, eru malaðar niður í duftform, settar inn í svona stafræna vél og svo er prentaður út matur. Það er verið að kynna þetta. Þetta er að verða að einhverri tísku. En einnig er hægt að prenta út skartgripi — gefum okkur sem dæmi einhvern sem hefði áhuga á skartgripahönnun: Það er endalaust hægt að þróa, senda upplýsingarnar þvert yfir heiminn, prenta út þar. Þetta er svo stórkostlegt.

Og það er annað í þessu sem er ekki síður mikilvægt og fær þá sem hér stendur ekki síður til að vera hrærða. Þetta, að framhaldsskólanemar hafi jafnan aðgang að stafrænum prentsmiðjum, er svo valdeflandi og er svo mikil jöfnunaraðgerð raunverulega fyrir þennan hóp. Ég tek undir það sem aðrir hafa sagt fyrr og vonast til að þetta fari líka inn í grunnskólana fyrir rest.

En þetta þýðir að með litlum tilkostnaði getur hvaða barn sem er á Íslandi þróað hugmyndir sínar um heiminn á áþreifanlegan hátt og lært og rannsakað heiminn, eiginlega skapað nýjan. Þetta er stórkostlegt. Ég gæti talað hér heillengi, eins og ég segi, en ætla ekki að gera það. Þess gerist vonandi ekki þörf. Ég vona innilega að þetta mál fái framgang hér á Alþingi og klárist og fari inn í raunheima hér á Íslandi.

Að lokum ætla ég að segja: Til hamingju, þið öll. Vel gert. Til hamingju við öll.