aðgengi að stafrænum smiðjum.
Herra forseti. Mig langar til að þakka kærlega fyrir þetta mál. Ég kem frá Höfn í Hornafirði og það er draumur í dós að heyra hvað er í gangi hér. Það sem við erum búin að fara yfir er það sem þetta litla samfélag, 2.300 manna samfélag, hefur verið að byggja upp frá árinu 2010. Fetað var í fótspor Vestmannaeyinga og við í sveitarstjórn fyrir austan byrjuðum á þessu verkefni. Ég verð að segja að síðustu árin hefur maður verið hissa á framlagi Nýsköpunarmiðstöðvar. Maður hefur verið að upplifa að hún er að draga sig út. Það var mikill stuðningur í byrjun en síðan hefur það verið barátta. Ég hjó sérstaklega eftir því sem sagt var um uppbyggingu og rekstur, að þarna erum við að fá einhverja með okkur í verkefnin. Því þetta er rekið þarna sem draumaverkefni. Grunnskólanemendur eru í stafrænni smiðju og framhaldsskólanemendur, það er opið fyrir almenning, það eru eldri borgarar, þeir sem vinna að málefnum fatlaðra, hver sem er. Allir hafa þarna aðgang. Krakkarnir koma þarna á haustin að gera jólagjafir fyrir foreldra og vini, fermingargjafir og hvað sem er. Þarna er verið að smíða hljóðfæri, Vírdós-tónlistarhátíðin er byggð upp af dóti sem verið er að búa til þarna. Eins og ég held að hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir hafi komið inn á er ekkert sem takmarkar nema hugmyndaflugið.
Þetta er frábært og ég óska ykkur öllum til hamingju og vona að þetta fari alla leið.