gerð áætlunar um stafræna endurgerð íslensks prentmáls.
Herra forseti. Hér kemur svolítið vel á vondan. Ég var að hluta til fjarverandi hluta af gestakomum þessa máls, fylgdist því ekki með öllum umræðum um það vegna þess að ég var einfaldlega við önnur þingstörf á meðan.
Það var hins vegar talsvert rætt, eins og kemur fram í nefndarálitinu, að ganga þyrfti frá því við höfunda bóka hvernig greiðslum til þeirra skyldi vera háttað. Líkt og kemur fram í nefndarálitinu leggur nefndin til að fulltrúar þessara hagsmunaaðila verði í starfshópnum, enda geta þeir í einhverjum tilfellum alla vega haft einhverra fjárhagslegra hagsmuna að gæta í því hvernig þessi mál skipast.
Ég get ekki svarað því til hvort þessi tvö mál hafi verið borin sérstaklega saman í þeim umræðum, en held að umræðurnar hafi frekar verið á þann veginn að hugsa um það hvernig mætti tryggja hag rithöfundanna.
En ég held að nefndin, verði þingsályktunartillagan samþykkt og þegar starfshópurinn starfar, muni líklega skoða hvað hafi verið rætt um á Alþingi, og þá kemur þetta fram og þannig geti hún þá tekið frekari afstöðu til þess hvort hún telji það vera eitthvað sem eigi að vinna frekar með.