148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

gerð áætlunar um stafræna endurgerð íslensks prentmáls.

219. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála því að það að íslenskan plumi sig sem best í stafrænum heimi er alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem samfélag og fyrir okkur sem málnotendur. Það er auðvitað partur af okkar menningu og framlagi okkar til heimsmenningarinnar að tala og viðhalda þessu tungumáli. Að því þurfum við auðvitað að huga.

Á sama tíma finnst mér við heldur ekki geta litið fram hjá því að það er fólk sem hefur notað vinnutíma sinn og framfleytt sér á því að búa til ritverk á þessu sama tungumáli. Þess vegna þarf líka að taka tillit til sjónarmiða þess, því að ekki er hægt kannski að ganga bara á vinnu annarra án þess að þeir fái neitt fyrir það, eða mér finnst alla vega að við þurfum að fara varlega í það hvernig farið er með höfundaverk annarra án þess að þeir fái neitt greitt fyrir það. Þarna eru atriði sem þarf að skoða hvernig verði best komið fyrir.

Ég held að sú nefnd sem hér er lagt til að mennta- og menningarmálaráðherra komi á laggirnar til að gera áætlun um stafræna endurgerð íslensks prentmáls verði fullfær um það og að þetta sé eitt af því sem hún getur haft undir hjá sér að skoða, þó svo ég ítreki það að (Forseti hringir.) nefndin hafi fjallað um það í nefndaráliti sínu að hér ættu hagsmunaaðilarnir að vera með í ráðum. Ég held að það sé líka mikilvægt.