148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

Þjóðskrá Íslands.

339. mál
[17:57]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hef svo gaman að því að fletta upp í fjármálaáætlun. Þar er t.d. gert ráð fyrir smíði á nýju þjóðskrárkerfi og viðhaldi á núverandi vinnslukerfi Þjóðskrár, eins og segir á bls. 196, með leyfi forseta:

„Koma meðal annars á skráningu og miðlun á upplýsingum um skráningu einstaklinga í íbúðir.“

Annað áhugavert á sömu blaðsíðu er fjármögnun málefnasviðsins. Nú er verið að sameina stofnanir. Það kostar ýmislegt, ekki bara á þeim tíma sem sameining gengur yfir heldur oft líka í kjölfarið. En fjármögnun málefnasviðsins fer niður á við, úr tæpum 3,8 milljörðum 2019 í tæpa 3,7 milljarða 2023.

Ég kannast aðeins við að það að smíða ný kerfi er ekki rosalega ódýrt. Ég velti fyrir mér, og geri það væntanlega frekar í síðari umr. um fjármálaáætlun, hvernig þessi verkefni eru fjármögnuð. Það kemur ekki mjög vel fram í fjármálaáætlun. En fyrst þetta mál er á dagskrá og tengist þessu atriði í fjármálaáætlun finnst mér eðlilegt að vekja athygli á því, enda er talað um ansi mörg verkefni Þjóðskrár í frumvarpinu og ákveðið flækjustig. Ég býst við að einhver hluti lækkunarinnar útskýrist einfaldlega af tilflutningi verkefna á milli ráðuneyta en það er verið að kaupa aðgang þarna á milli, það er þjónustusamningur á milli, útgjöldin lenda þá vissulega í fjármála- og efnahagsráðuneytinu en ekki endilega á þessu málefnasviði, sem er ekki sem gagnsæjast.

Það væri, myndi ég telja, heppilegra að hlutverkið lægi hjá Þjóðskrá, einnig lagalega. Annars erum við í raun að glíma við ákveðna tvöföldun á þjóðskránni þar sem aðgengi inni á island.is er í raun og veru þjóðskráin og þar eru ýmsar aðrar upplýsingar sem eru praktískt séð líka gögn innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins þó að þau séu geymd og þjónustuð í þjóðskrá. Þarna er ákveðin tvöföldun á skránni sem slíkri og mér finnst það óheppilegt. Það er ákveðið flækjustig sem ég átta mig ekki á.

Þetta er mjög mikilvæg stofnun sem fer með mjög viðkvæm gögn samkvæmt hlutverki sínu. Ég velti fyrir mér í tengslum við annað mál sem við erum að fara að ræða á næstunni, persónuverndarlöggjöfina, hvaða gögnum eigi að safna, kyni, kennitölu og því um líku, og hvernig það rímar við persónuverndarlöggjöfina sem við þurfum að staðfesta. Þá rek ég sérstaklega augun í breytingar á öðrum lögum, lögum um kosningar, sem heimila Þjóðskrá Íslands að vinna persónuupplýsingar við gerð kjörskrárstofna. Það segir líka í reglugerðarheimildinni að ráðherra sé heimilt að kveða nánar á um eftirfarandi atriði í reglugerð, þ.e. um hlutverk Þjóðskrár Íslands. Ég velti fyrir mér hvort seilst sé of langt í því að taka stefnumótun frá Alþingi hvað stofnanir varðar.

Ef ég bind saman hlutverkið við þjónustugjöldin finnst mér það í raun tengjast dálítið hvert hlutverkið er og hvaða þjónustu stofnanir ætla að veita og þau þjónustugjöld sem er kveðið á um í frumvarpinu. Þar er kveðið á um þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá, t.d. aðgang að fasteignamati, brunabótamati nýrrar fasteignar, upplýsingar úr fasteignaskrá, úr þjóðskrá, uppflettingar í hinu og þessu. Það á að taka tillit til ýmissa atriða, kostnaðar vegna launa og launatengdra gjalda, framleiðslu, aksturs, þjálfunar og endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskiptabúnaðar og tækja og ég veit ekki hvað og hvað. En á sama tíma er ráðherra heimilt að skilgreina hlutverk Þjóðskrár í reglugerð. Það hlýtur að tengjast þeirri þjónustu sem Þjóðskrá á að veita. Mér finnst tengingin þarna á milli skjóta pínulítið skökku við, að fastsett sé hvaða þjónustugjöld Þjóðskrá geti rukkað fyrir en hlutverkið fylgi ekki þjónustunni sem Þjóðskrá á að veita. Hlutverkið er líka skilgreint í 3. gr. Þetta er því áhugaverð samblanda hlutverks sem endar líka í reglugerðarheimild. Ég átta mig ekki alveg á samhenginu þar né á því hvernig það er útskýrt í greinargerðinni.

Hvað varðar hlutverkið má nefna eitt sérstakt atriði. Í f-lið er sagt að stofnunin aðstoði við stefnumótun og ákvarðanatöku eftir því sem við á. Ég ímynda mér Þjóðskrá sem upplýsingagefandi stofnun og er ekki viss hvort hún aðstoðar við stefnumótun og ákvarðanatöku. Mér finnst það hljóma eins og verið sé að ganga skrefinu lengra en ráðgjöf, þó að útgangspunkturinn sé einmitt ráðgefandi.

Það eru nokkrir hlutir sem gerast oft þegar verið er að sameina stofnanir og búa til ný heildarlög. Á heildina litið er þetta mjög fínt en það eru agnúar sem við þurfum alltaf að vera vakandi fyrir þegar stofnanir sameinast. Ég gekk í gegnum þetta þegar Námsgagnastofnun og Námsmatsstofnun voru sameinaðar. Maður hefði haldið að stofnanir hefðu einfaldlega getað haldið áfram að sinna hvor sínu hlutverki undir sama þaki og drifið hvor aðra áfram. En hlutverkið breytist dálítið við sameiningu á þeim mismunandi skyldum sem stofnanir hafa. Þær þróast og eflast í raun og veru ef vel tekst til.

Nú er Þjóðskrá búin að bæta við sig Fasteignaskrá Íslands. Þarna kemur tengingin við þjóðskrána sjálfa og fasteignaskrána. Á því málefnasviði sem Þjóðskrá tilheyrir er talað um ákveðna gagnasöfnun tengdri staðsetningu í hús og jafnvel menntun og eftir kyni. Þetta er unnið innan Hagstofunnar. Það er fullt af nýjum hagskýrslum og breytum unnar þar, væntanlega með aðgengi að gögnum í þjóðskrá og núna í eignaskránni sem þjóðskrá er. Þetta er örugglega mjög hentugt samband hvað það varðar, gögnin þurfa ekki að koma frá eins mörgum stöðum til þess að verða að gagni, en á sama tíma verður samþættingin það mikil að persónuverndarsjónarmið hljóta að vera öflug, hvað verið er að hugsa um í stefnumótuninni. Það er sérstaklega gert ráð fyrir ítarlegra manntali, m.a. staðsetningu og menntun, og mikil sundurgreining gagna eftir kyni.

Eins gott og það er að hafa meiri upplýsingar þurfum við að staldra við og hugsa af hverju við erum að safna þessum upplýsingum. Við þurfum að útskýra markmiðin með því. Út á það gengur persónuverndarlöggjöfin, ekki bara að safna gögnunum gagnanna vegna og forvitni okkar vegna.

Ég geri athugasemdir við það í fjármálaáætlun, líkt og við margt annað í henni, að þau markmið sem eru sett fram, sem þetta frumvarp er að raungera að einhverju leyti, skuli ekki vera sett fram með tilliti til þess hvaða árangur við sjáum af því að safna gögnunum, til að geta útskýrt af hverju við viljum fá gögnin yfirleitt, hvers vegna við erum að safna þeim og búa til skýrslur úr þeim og borga fólki laun fyrir að gera það. Við fáum aðeins upplýsingar um að það eigi að gera þetta.

Þetta er galli sem ég sé á því að svo mikilvæg stofnun safni jafn mikilvægum upplýsingum og gögnum, t.d. varðandi kjörskrá. Við þurfum einnig að hugsa út í það hlutverk sem stofnunin hefur og þá þjónustu sem hún veitir og virkilega skipuleggja tilgang hennar og þá söfnun á gögnum sem við leggjum til hér. Maður sér að sjálfsögðu fullt af möguleikum í söfnun á gögnunum og því að hafa t.d. fasteignaskrá á hreinu. Ég myndi glaður vilja hafa þinglýsingarskránna miklu aðgengilegri, miklu nýrri, þannig að um leið og þinglýsingar væru kláraðar væru þær rafrænt skráðar og aðgengilegar fyrir alla til að geta skoðað til að mynda hvernig húsnæðisverð og leiguverð breytist dagsdaglega. Þá er hægt að öðlast miklu betri skilningi á því sem er að gerast í samfélaginu. Við hefðum kannski miklu fyrr séð fyrir vandamál varðandi Airbnb ef gögnin væru til og markmið þeirra skilgreint. Að fylgjast með þróun söluverðs á húsnæðismarkaði vikulega, mánaðarlega, er líklega nægilega gott. Fasteignaskráningin er einhvers staðar þar eins og er en ekki opin almenningi sem slík. Það er mjög sérhæfður aðgangur að þeim upplýsingum og almenningur hefur ekki slíkan aðgang. Þannig gæti almenningur skoðað t.d. meðalfermetraverð í því hverfi þar sem á að kaupa íbúð í eða leigja. Þetta er aðgengilegt eftir því sem ég best veit í Danmörku og ýmsum öðrum borgum í Evrópu. Þar er leiguverðið miklu aðgengilegra svo að fólk viti fyrir fram algengt leiguverð á því svæði sem það er að skoða og veit þegar það fær tilboð um kaup, sölu eða leigu hvort upphæðin sé eðlileg fyrir viðkomandi svæði eða ekki. Það er ákveðin neytendavernd í því og líka ákveðin vernd eða trygging fyrir þá sem eru að selja, að þeir selji ekki á of lágu verði. Það hagnast allir á þessu.

Allt í allt er þetta jákvæð þróun. Eins og ég segi geri ég athugasemdir en þær eru ekki endilega alvarlegar heldur meira ábendingar um að markmiðin sem við höfum með því að safna gögnunum þurfi að vera skýr og skýrt sett fram. Það getur vel verið að það sé gert innan stofnunarinnar, sem er eitthvað sem við sjáum aldrei en ættum að fá að sjá, sérstaklega þegar við erum að taka ákvörðun um breytingu á lögunum eins og þau eru. Við eigum ekki endilega að þurfa að treysta á gamlar skilgreiningar eða hefðina fyrir því að slíkum upplýsingum sé safnað. Kannski er ástæðan úrelt fyrir því að safna upplýsingum um kyn í þjóðskrá eða kjörskrá eða hvar sem það er.

Ég vildi koma því á framfæri hvað sameining stofnana er erfið, hún kostar. Þróun á nýjum og góðum gögnum og kerfum er líka kostnaðarsöm. Nauðsynlegt er á sama tíma að stefna stjórnvalda um það hver markmiðin eru sé rosalega skýr og líka í tengslum við persónuverndarlöggjöfina, að alla vega sé verið að fara eftir því sem ætlast er til af okkur og að lögin, önnur lög sem við setjum, endurspegli þau markmið sem við þurfum að setja okkur í framtíðinni.

Það er óheppilegt að þetta komi rétt áður en við samþykkjum persónuverndarlöggjöfina. Við erum ekki alveg á þeim nótum enn þá af því að við erum ekki búin að klára þá umræðu og þann sameiginlega skilning sem við höfum á því hvernig það allt virkar, því að Þjóðskrá heldur vissulega utan um gögn sem varða þá umræðu. Við þurfum aðeins að hugsa hvort eitthvað hér skiptir okkur máli samkvæmt nýju persónuverndarlöggjöfinni því að annars getum við mjög fljótlega þurft að laga, eins og venjulega. Ef það er eitthvað sem stingur í stúf þurfum við að veita því athygli.