Þjóðskrá Íslands.
Virðulegur forseti. Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn og örugglega ekki það síðasta sem ég stend í þessari pontu og á orðastað við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson um gjaldtöku á upplýsingum. Það er eitthvað sem er að breytast. Þetta er eitthvað sem við erum að breyta í hverjum lögum á fætur öðrum. Við erum að draga úr gjaldtöku hins opinbera þegar kemur að aðgangi að upplýsingum.
Mig langar aðeins að velta einu upp með honum af því að það ákvæði sem við erum að innleiða með þessum lögum er kannski endurómur frá því sem við kveðjum bráðum, þ.e. þegar við horfum til lengri framtíðar er þetta væntanlega gjaldtökuákvæði sem mun úreldast. En við vorum bara rétt á þessu þingi að samþykkja lög um endurnot opinberra upplýsinga þar sem við erum að innleiða grunnprinsippin sem ég held að muni verða hérna til framtíðar, að gjaldtaka fyrir endurnot opinberra upplýsinga eigi bara að endurspegla hreinan kostnað við fjölföldun eða afhendingu gagnanna á meðan eldri ákvæðin sem þetta frumvarp byggir á bera með sér að það sé jafnvel hægt að henda fleiri kostnaðarliðum inn í útreikninginn á stofninum fyrir gjaldtökuna.
Ég veit að hv. þingmaður hefur velt þessu mikið fyrir sér. Og líka vegna þess að þingmaðurinn situr í fjárlaganefnd langar mig að spyrja hann hvernig hann sjái fyrir sér næstu misseri hjá okkur, hvers konar heildarendurskoðun á gjaldtökuákvæðum laga við gætum verið að fara út í eða hvort einhver möguleiki sé á að fara að hreyfa við þessu í víðara samhengi þannig að við tækjum þetta ákvæði fyrir ásamt einhverjum tugum annarra ákvæða í sambærilegum lögum.