störf þingsins.
Hæstv. forseti. Þó að margt sé í gangi hér á lokadögum þings þá slæddist til okkar mjög svo mikilvægur tölvupóstur hér í morgun frá samtökunum Olnbogabörnum. Það er rétt að hvert barn er dýrmætt. Þess vegna var sláandi að fá þennan póst sem hafði þann tilgang að fá okkur hér í þinginu til að hlusta og taka á málum. Það er ekki enn búið að opna meðferðarúrræði sem átti að opna fyrir þó nokkru. Það var boðað að opna ætti innan tveggja vikna en nú erum við upplýst um að ekki eigi að opna það fyrr en í september. Stefna þeirra sem fara með málaflokkinn hefur verið sú á undanförnum misserum að loka meðferðarúrræðum sem brýn þörf er fyrir og kallað er eftir. Eftir stendur að það eru börn sem þurfa hjálp núna og það er mikilvægt að við veitum aðstoðina núna. Það sem blasir við er að við þurfum að bregðast strax við. Ég minni á orð hæstv. félags- og jafnréttismálaráðherra þegar hann sagði, með leyfi forseta:
„Það er mikilvægt að lyfta umræðunni um börn því allt sem snýr að börnum í stjórnsýslunni stendur höllum fæti.“
Tölvupósturinn sem barst í morgun er sönnun þess og við því þurfum við að bregðast. Við þurfum að bregðast við strax.