148. löggjafarþing — 69. fundur,  6. júní 2018.

störf þingsins.

[10:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að tala um ákveðinn hlut sem hrjáir ríkisstjórnarmeirihlutann, það er svokölluð gleymska. Eina frumvarpið mitt í þinginu var um að hætta að skattleggja og skerða lyfjastyrki, styrki fyrir öryrkja sem varða umönnunarkostnað, lyfjakostnað, kaup á heyrnartækjum, húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta, dvöl á sambýli og áfangaheimili, rafmagnskostnað vegna notkunar á súrefnissíu, lömun eða skerta hreyfigetu á ganglimum af völdum sjúkdóma eða fötlunar, mæði vegna hjarta- og lungnasjúkdóma, annað sambærilegt. Heimilt er að greiða ellilífeyrisþegum og örorkulífeyrisþegum örorkustyrk, mánaðarlega uppbót til að mæta kostnaði vegna reksturs bifreiða. Skilyrði er að nauðsynlegt sé fyrir viðkomandi að hafa bifreið vegna hreyfihömlunar og sýnt er að hann geti ekki komist af án uppbótarinnar.

Fyrir eldri borgara er um að ræða lyfja- og sjúkrakostnað, umönnun í heimahúsi, dvöl á sambýli, rafmagnsnotkun vegna súrefnissíu, heyrnartæki, húsaleigu sem fellur utan húsaleigubóta. Þessar greiðslur eru allflestar háðar ákveðnum skilyrðum, t.d. varðandi tekjur lífeyrisþega, búsetu á Íslandi, heimilisaðstæður o.fl.

Þessi ríkisstjórn og fyrri ríkisstjórnir gleyma alltaf öryrkjum. Menn lofa og lofa fyrir kosningar, en um leið og kosningarnar eru afstaðnar þá gleyma þeir. Þeir gleyma algjörlega.

Öryrkjar og eldri borgarar fá aldrei afturvirkar hækkanir. Aldrei. Hafa aldrei fengið afturvirkt. Allir aðrir fá afturvirkar hækkanir.

Allir launþegar og aðrir fá hækkanir samkvæmt launavísitölu. Hvað er gert við öryrkja? Við erum hækkaðir samkvæmt neysluvísitölu. Engin virðing.

Síðan gleymist líka fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra, fyrirspurn um persónuafslátt. Sex vikur. Ekkert heyrst. Engin afsökun. Ekkert. Ekki beðið um frest. Sex vikur.

Ég held að það sé alvarleg gleymska í gangi hjá þessari ríkisstjórn og að hún þurfi að fara á minnisnámskeið.