148. löggjafarþing — 69. fundur,  6. júní 2018.

aðgengi að stafrænum smiðjum.

236. mál
[11:13]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Mig langaði að koma hér upp og fagna þeirri samstöðu sem náðist í þinginu um þessa tillögu. Eins og við komum inn á í umræðunum í gær held ég að þetta sé að mörgu leyti tímamótamál þó að það láti lítið yfir sér. Það verður spennandi að sjá hver framtíðin verður með þessari tillögu. Bara til hamingju.