148. löggjafarþing — 69. fundur,  6. júní 2018.

aðgengi að stafrænum smiðjum.

236. mál
[11:13]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Forseti. Þegar ég stakk í hálfgerðum hálfkæringi upp á því fyrir 12 árum að við reyndum að stofna fyrstu smiðjuna af þessu tagi úti í Vestmannaeyjum átti ég engan veginn von á því að það myndi nokkurn tíma ganga þetta langt. Mig langar til að þakka þinginu fyrir að taka svona virkilega vel á móti framtíðinni og bera þessa hugmynd í raun miklu lengra áfram en lagt var upp með í þingsályktunartillögunni sem upphaflega var lögð fram. Það sýnir að við erum kannski tilbúnari en manni hefur oft fundist til að takast á við virkilega stór mál. Ég þakka öllum fyrir góða afgreiðslu á þessu máli.