148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

menntun fatlaðs fólks.

[10:35]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæt svör og jákvæð viðhorf. Þau duga langt, en í verunni þarf að bæta við fjármagni inn í þennan geira. Ef t.d. Listaháskóli Íslands eða aðrir myndu vilja fara af stað með nám eða braut þá er hvergi hægt að sækja um fé. Öllum nemendum fylgir fjármagn nema nemendum með þroskahömlun, þeir eru teknir út fyrir sviga. Diplómanámið í Háskóla Íslands er í baráttu fyrir tilveru sinni á tveggja ára fresti. Diplómanámið í Myndlistaskólanum fékk ekki fjármagn til að halda áfram frábæru námi sem kom til móts við hæfileikaríka einstaklinga. Ungt fólk með þroskahömlun hefur sorglega fá tækifæri þrátt fyrir að langa til að mennta sig áfram eins og annað ungt fólk. Það fær ekki sömu tækifæri til að njóta hæfileika sinna eða þroska þá og skapa sér auðugra líf og framtíð. Að því eigum við auðvitað að stuðla öll sem eitt.