menntun fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Allir á Íslandi eiga að hafa sömu tækifæri til menntunar og að sjálfsögðu fatlað fólk líka. Þess vegna er rekin menntastefna á Íslandi sem heitir Menntun fyrir alla. Það stendur hreinlega í lögum að tækifærin eigi að vera þau sömu og aðgengi þeirra að háskólum. Að því vinnum við.
Það er mjög mikilvægt að við sem erum kjörin á þing tölum af ábyrgð um þennan málaflokk og gefum ekki þau skilaboð út í samfélagið að aðgengi fatlaðs fólks sé eitthvað annað en annarra einstaklinga. Allir eiga að hafa sömu tækifæri og við erum svo sannarlega að vinna að því með því að auka fjárframlög er varða málaflokk og menntun fatlaðs fólks.
Ég vil líka upplýsa að við erum að vinna að bættu námsframboði fyrir þá sem eru heyrnarskertir og erum að vinna að mörgum mjög góðum hlutum hvað þetta varðar.