tekjur ríkisins af sölu Arion banka.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Hann hefur greinilega áhyggjur af því að ég lesi blaðagreinar, en það er þannig að ég verð að lesa blaðagreinar til þess að fá upplýsingar um þetta mál því að það er engu svarað. Ég er búinn að nefna þetta nokkrum sinnum úr þessum ræðustól, hæstv. ráðherra. Þess vegna verður maður að afla sér upplýsinga með öðrum hætti. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni að svo skuli vera farið fyrir eftirlitshlutverki Alþingis.
Ráðherra minnist á forkaupsréttinn. Það er afar áhugavert að ríkið fær ekkert frá Kaupþingi ef selt er undir 0,8, það hefur komið fram, það hefur ráðherra núna upplýst, hvorki greiðslu fyrir mismuninn né greiðslu fyrir að gefa réttinn eftir. Undanlátssemi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gagnvart vogunarsjóðum Arion banka er makalaus. Allar kröfur vogunarsjóðanna hafa verið samþykktar. Sala hlutabréfa ríkisins á undirverði samþykkt möglunarlaust. Bankaskattur á vogunarsjóðina lækkaður möglunarlaust. (Forseti hringir.) Verðmætum forkaupsrétti afsalað möglunarlaust. Allt fyrir ekki neitt.