stuðningur við borgarlínu.
Virðulegi forseti. Ég hef reyndar í tvígang átt aðild að ríkisstjórnum sem hafa sagt að það sé sjálfsagt að ræða borgarlínu eins og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa kallað eftir. Í því felst að við viljum greiða fyrir betri almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og við viljum að það samtal sé í samræmi við væntingar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar maður sest hins vegar niður með sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu þá fær maður alveg óskaplega ólíka mynd eftir því við hvern maður talar. Ef maður t.d. myndi renna sér inn í Garðabæ og tala þar við bæjarfulltrúa þá finnur maður ekki fyrir miklum áhuga á því að setja eina einustu krónu úr bæjarsjóði í að láta verkefnið verða að veruleika.
Ef maður fer inn í Hafnarfjörð þá finnur maður fyrir því að það er allt önnur forgangsröðun en í þágu borgarlínu. Fyrst þarf að klára mislægu gatnamótin við Reykjanesbrautina. Fyrst þarf að tvöfalda Reykjanesbrautina suður í Keflavík. Og það er ekki fyrr en þessi mál eru komin í farveg sem Hafnarfjörður segir við okkur í dag að þeir vilji fara að setja borgarlínu framar í forgangsröðina.
Ef maður kemur til Reykjavíkur hins vegar og ræðir við borgarstjórann í Reykjavík þá heyrir maður það að þar er fullur kraftur í málinu af hans hálfu, en ekki af hálfu allra flokka í borginni. Þar heyrir maður í fyrsta skipti talað um að það eigi að skattleggja borgarbúa fyrir verkefninu. Það er ekki það sama upp á teningnum þegar maður fer í önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Hvað getur maður annað sagt en að þetta samtal sé afskaplega skammt á veg komið? Þetta samtal hlýtur að sjálfsögðu að þurfa að eiga sér stað við samgönguráðherra sem hefur lýst því yfir að hann vilji horfa á málið heildstætt. Það sem ég vonast til þess að verði niðurstaðan er hvort tveggja í senn úrlausn á þeim helstu samgöngumannvirkjum eða þeim vandamálum sem við horfum fram á hér á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma og greitt er fyrir betri almenningssamgöngum.
Ég held að of mikið sé gert úr því að þverpólitískur ágreiningur sé milli flokka um að skynsamlegt sé að styðja betur við almenningssamgöngur. Það er ekki, en þegar menn ríða fram á sviðið með hugmyndir um að á næstunni eigi 35 milljarðar að koma úr ríkissjóði án þess að fyrir liggi nein heildstæð mynd (Forseti hringir.) um hvernig það samtal á að eiga sér stað eða hvað verði þá um önnur mikilvæg samgöngumannvirki og úrbætur í samgöngumálum á (Forseti hringir.) höfuðborgarsvæðinu, þá eru menn komnir fram úr sér. Það er það (Forseti hringir.) sem ég á við.