stuðningur við borgarlínu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Mig langar samt að spyrja hvað hann sjái fyrir sér að væri æskilegt framhald af samtali ríkis og sveitarfélaga um, eins og hann kom inn á, þróun samgöngu innan höfuðborgarsvæðisins. Hvernig sér hann það fyrir sér? Nú á næstunni verður ljóst hvaða meiri hluti mun standa að myndun borgarstjórnar. Þeir flokkar sem standa að þeim viðræðum sem nú eru í gangi hafa allir sagst styðja verkefnið um borgarlínu. Því má ætla að haldið verði áfram með þróun borgarlínu í ljósi þess sem kemur fram í stjórnarsáttmálanum. Með hvaða hætti telur hæstv. fjármálaráðherra að aðkoma ríkisins geti verið þegar búið er að skýra samtalið aðeins og þróa það lengra en raun ber vitni í dag?