148. löggjafarþing — 70. fundur,  7. júní 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[13:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni, 2. varaformanni hv. fjárlaganefndar, fyrir. Mér finnst þessi spurning mjög gild. Ég ætla að byrja á því að vísa í sameiginlegar ábendingar fjárlaganefndar þar sem við segjum að einfalda og fækka þurfi markmiðum stjórnvalda. Þau þurfi að kostnaðar- og ábatameta. Tryggja þarf að þau nái utan um meginstefnu fjármálaáætlunar og helstu aðgerðir sem tengjast henni. Gera verður kröfu um að mælikvarðar og árangur og markmiða séu skilgreindir og mælanlegir.

Eins og ég fór yfir í ræðu minni skortir þar upp á tölugrunna og kostnaðarmat markmiða og aðgerða. Það setur nefndina í þó nokkurn vanda þegar kemur að breytingum.

Svo vil ég benda á að fjármálastefna er greypt í stein og þarf ríkisfjármálaáætlun að byggja á henni og svo fjárlög. En ríkisfjármálaáætlun er endurskoðuð árlega þannig að fjárlaganefnd getur komið, eins og gert er hér, með mjög sterkar ábendingar um slíkt endurmat. En inn í framtíðina tel ég að við þurfum að fara mjög gaumgæfilega yfir stöðu þingsins og fjárlaganefndar gagnvart svona áætlunum, viðamikilli áætlun, þar sem fjárhæðir eru mjög miklar, þegar við gerum breytingar á þingsályktuninni sjálfri þar sem tölugrunnarnir eru. Ég held að þetta sé ekki vegna þess að nefndin treysti sér ekki til, en þó jú, að hluta til af því að fara þarf fram mjög faglegt mat og byggja á tölum sem ekki liggja fyrir, upp á innbyrðissamhengi, í þingsályktunartillögunni sjálfri.