fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir ærlegt svar. En vinna nefndarinnar minnti mig á góðan málfund. Mér finnst það svolítil vanvirðing gagnvart umsagnaraðilum sem bæði sendu okkur umsagnir og komu til nefndarinnar, sendu ítarlegar umsagnir upp á 10 blaðsíður, að við gerum nánast ekkert með það. Það eru engar efnislegar breytingar í áætluninni. Til hvers vorum við í þessari umfjöllun ef við ætlum bara að samþykkja áætlunina óbreytta? Meiri hlutinn leggur til að við samþykkjum hana óbreytta. Því miður held ég að þetta mál, þessi afgreiðsla, sýni enn og aftur hversu mikil stimpilstofnun Alþingi er í augum ráðherranna. Þetta er ekki hægri/vinstri mál. Við þingmenn eigum að standa í lappirnar gagnvart þessu og ná fram — ég er ekki að segja að við séum sammála um allt, en við erum sammála um ansi margt, það má ekki gleymast. Við eigum að ná fram þessum efnislegu breytingum sem ég veit að liggja fyrir hugmyndir um í hjarta margra stjórnarþingmanna.
Annars langar mig aðeins að koma að öðrum punkti gagnvart formanni nefndarinnar af því að ég veit hann er talnaglöggur maður. Hér er gert ráð fyrir hagvaxtarskeiði í 13 ár. Venjuleg hagvaxtarskeið á Íslandi eru þrjú til fimm ár. Hefur formaður virkilega trú á því að við séum að fara að upplifa hér 13 ára samfleytt hagvaxtarskeið?
Númer tvö: Raungengi krónunnar hefur aldrei verið sterkt, það hefur alltaf fallið við slíkar aðstæður. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir óbreyttu raungengi næstu fimm árin. Við vitum að um leið og gengið gefur eftir eða fellur hefur það áhrif á hagvöxt, vexti, verðbólgu, einkaneyslu, utanríkisviðskipti og skatttekjur. Þannig að um leið og gengið fellur eru öll excel-skjölin hrunin.
Trúir formaðurinn virkilega að raungengi verði óbreytt næstu fimm árin og hér verði samfleytt 13 ára hagvaxtarskeið, sem ég ítreka að hefur aldrei gerst síðan Ísland byggðist fyrir þúsund árum?